Til Stavanger


16.-19.april 2026

Tilboðið miðast við 40 manns á gengi dagsins og gildir til 5.12.2025


Lífleg borg við hafið þar sem náttúra og borgarlíf mynda ógleymanlega upplifun.


Æsispennandi barátta Ethan Hunt (Tom Cruise) og August Walker (Henry Cavill) úr Mission Impossible Fallout var tekin upp á Preikestolen

Stavanger er ein áhugaverðasta borg Noregs – þekkt fyrir fallega gamla miðbæinn, líflegt matarmenningarlíf, menningu og ekki síst ótrúlega náttúruna sem umlykur borgina.


Hér er tilvalið að sameina vinnu, afþreyingu og skemmtilegar upplifanir í einni ferð. Borgin er blanda af litlum sögulegum húsum, nútímalegri höfn, fjörugu miðbæjarlífi og fjölbreyttum veitingastöðum. Allt er stutt frá hvoru öðru og auðvelt að njóta borgarinnar fótgangandi.

Stavanger er hliðin að einhverjum mest spennandi náttúruperlum Noregs, þar sem gestir geta upplifað stórbrotna náttúru á auðveldan og aðgengilegan hátt. Preikestolen (Pulpit Rock) er ein vinsælasta fjallaganga landsins og býður upp á ótrúlegt útsýni yfir Lysefjorden. Fyrir þá sem sækjast eftir enn meiri spennu býður Kjeragbolten upp á ævintýralega upplifun sem margir telja ógleymanlega. Þeir sem kjósa rólegri leið geta farið í siglingu inn Lysefjorden, þar sem klettar, fossar og fjallalandslag mynda magnað sjónarspil. Við ströndina má einnig finna Sverd i fjell, táknræn og áhrifarík minnismerki sem minna á sögu og menningu svæðisins.


 Hvað er hægt að gera í Stavanger

Fjallgöngur í nágrenninu, allt frá léttum göngum upp á útsýnisstaði til lengri leiða, gefa frábært tækifæri til að njóta norðlægrar náttúru.

Fjörusiglingar og smábátaævintýri eru ómissandi. Að sigla inn Lysefjorden með háu klettunum og fossunum allt í kring er upplifun sem maður gleymir ekki.

Gamle Stavanger er fullkominn staður til að rölta um og skoða falleg hvít timburhús, sjarmandi götur og notaleg stemningu

Stavanger er líka frábær fyrir craft-bjórunnendur. Brugghúsin í borginni bjóða upp á skemmtilega upplifun og góðan bjór.

Kvöldin í Stavanger eru lífleg og notaleg. Góðir veitingastaðir, skemmtilegar krár og lifandi tónlist skapa stemningu sem hentar öllum hópum.

Norsk Oljemuseum er eitt af bestu söfnunum í Noregi og fullkomið fyrir hópa sem vilja fræðast á skemmtilegan hátt og prófa gagnvirkar uppsetningar.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Tengiflug með áætlunarflugi Norwegian

  • 23 kg innritaður farangur
  • 1 x handfarangur

Flogið út

Brottför kl. 08:35 frá Keflavík → lending í Stavanger kl. 15:55 

(Ferðatími , ~6klst 20 mín
með 1h50min stop í Oslo)

Flogið heim

Heimferð: kl. 15:00 frá Stavanger → lending í Keflavík kl. 17:50

(Ferðatími, ~4 klst 50 mín,
með 1h10min stop í Oslo)

Gisting

3 nætur  á hóteli miðsvæðis í Stavanger. Innifalið er morgunverður wifi og city tax.



Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli
Aksturstími ca 15 mín.

Fararstjórn

Einn skemmtilegur Tripical fararstjóri.

Hægt að bóka gegn gjaldi.



Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Scandic Stavanger City

⭐️⭐️⭐️⭐️

*Staðfest verð*

Hótelið er staðsett á hafnarsvæðinu í Stavanger. Gamli bærinn í Stavanger er í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Veitingastaðir og verslunarhverfi eru í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.


Morgunverðarhlaðborð með lífrænum réttum er borið fram á hverjum morgni á hótelinu. Veitingastaðurinn Varmen er með opnu eldhúsi og býður upp á hádegismat og kvöldmat úr ferskum hráefnum frá svæðinu. Einnig er hægt að njóta drykkja á barnum.


Aðstaðan innifelur líkamsræktarstöð. Lítil verslun er að finna í anddyrinu.


Byparken Park er í 650 metra fjarlægð. Lestarstöðin í Stavanger er í 20 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu.



Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

109.990 kr.

á mann í tvíbýli

129.990 kr.

á mann í einbýli


Radisson Blu Atlantic Hotel

⭐️⭐️⭐️⭐️

Hið vistvæna Radisson Blu Atlantic er í 3 mínútna göngufjarlægð frá aðaljárnbrautarstöðinni í Stavanger og býður upp á útsýni yfir fjörðinn, borgina og fjöllin frá ókeypis líkamsræktinni og gufubaðinu á efstu hæðinni. WiFi er einnig ókeypis. Gamli bærinn í Stavanger er í 250 metra fjarlægð.


Herbergin á Radisson Blu Atlantic eru með loftkælingu, kapalsjónvarp og te- og kaffiaðstöðu. Öll eru með sérbaðherbergi með sturtu eða baðkari.


Norska olíusafnið er í 700 metra fjarlægð. Stavanger Sola-flugvöllurinn er í innan við 20 mínútna akstursfjarlægð. Það stoppa flugrútur beint fyrir utan hótelið

Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

124.990 kr.

á mann í tvíbýli

159.990 kr.

á mann í einbýli


Scandic Stavanger Park

⭐️⭐️⭐️⭐️

Hótelið er aðeins 200 metra frá lestarstöðinni í Stavanger og 500 metra frá höfninni og býður upp á ókeypis Wi-Fi internet á öllum svæðum.


Setusvæði og te-/kaffiaðstaða eru í öllum herbergjum á Scandic Stavanger Park. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi með sturtu.


Scandic Stavanger Park býður upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni, sem inniheldur álegg, brauð, morgunkorn og safa. Gestir geta slakað á með drykk í bókasafnsstofunni. Ókeypis te/kaffi er í boði í anddyrinu. Á sumrin geta börn notið afþreyingar á staðnum og leiksvæðis.


Elsta dómkirkja Noregs, Stavanger Domkirke, er í 400 metra fjarlægð. Hótelið er í 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum, Gamle Stavanger. Bílastæði eru í boði á staðnum.


Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

109.990 kr.

á mann í tvíbýli

132.990 kr.

á mann í einbýli


Comfort Hotel Square

⭐️⭐️⭐️⭐️

Hótelið er staðsett í hjarta Stavanger, í aðeins 500 metra fjarlægð frá stöðuvatninu Breiavatnet og Stavanger-lestarstöðinni. Það býður upp á ókeypis Wi-Fi Internet, líkamsræktaraðstöðu og herbergi með flatskjásjónvarpi.


Hljóðeinangruð herbergin á Comfort Hotel Square eru með nútímalegum innréttingum, lúxusrúmum og skrifborði.


Hægt er að fá snemmbúinn morgunverð til að taka með sér á hverjum morgni. Á sunnudögum er gestum boðið upp á síðbúinn morgunverð ásamt síðbúinni útritun.


Comfort Square býður upp á greiðan aðgang að verslunum, menningu og næturlífi. Áhugaverðir staðir á borð við Stavanger-dómkirkjuna og Stavanger-safnið eru í innan við 10 mínútna göngufjarlægð.


Hótelið fær heildareinkunn 7,8 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

109.990 kr.

á mann í tvíbýli

129.990 kr.

á mann í einbýli


Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. hopar@tripical.com