Til Sitges
8.-11. maí 2026
Fjölbreytileikanum fagnað í suðrænni paradís!
35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin sólríka og sykursæta Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheita næturlífi og frábæru festivölum. Yndislegur staður!
Fjölbreytileikanum er fagnað í þessum dásemdar smábæ með dansi og tónlist hvenær sem færi gefst. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur, hvers kyns eða kynhneigðar sem það er. Hér eru allir vinir, og öllum áhyggjum og óþarfa leiðindum er góðfúslega vísað frá.
Litlir götustígar skera bæjarkjarnann þvers og kruss. Alls staðar eru litlar verslanir, skemmtilegir veitingastaðir og krár, þar sem auðvelt er að finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem lagst er í gott sólbað á einni af þeim 13 ströndum sem tilheyra svæðinu.
Sitges er stundum nefnd Festivalabærinn. Árið um kring standa yfir hátíðir af ýmsu tagi. Þekktust er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming yfirtaka bæinn. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt öðrum minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun
Hvað er hægt að gera í Sitges
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Tilboð 1
Hótel
Hotel Calipolis
****
Calipolis er staðsett miðsvæðis í Sitges og við ströndina. Það býður upp á sólarhringsmóttöku, útisundlaug, líkamsræktarstöð, herbergi sem eru með loftkælingu og ókeypis WiFi.
Herbergin á Calipolis eru glæsileg og þau státa af flatskjá og sérbaðherbergi með hárþurrku.
Boðið er upp á ókeypis afnot af sundlaugarhandklæðum.
Veitingastaður hótelsins, Infinity Restaurant, býður upp á Miðjarðarhafsrétti við hliðina á sundlauginni.
Það er einnig bar til staðar og sumarverönd með útsýni yfir sjóinn og göngusvæðið.
Hægt er að leigja hjól í móttökunni.
Heildareinkunn 8,3 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
.
Verðin
149.990 kr.
á mann í tvíbýli
194.990 kr.
á mann í einbýli
Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.
Tilboð 2
Hótel
Sercotel Kalma Sitges
****
Þetta nútímalega boutique-hótel er staðsett á Paseo de la Ribera-göngusvæðinu við sjávarsíðuna í Sitges, nokkrum metrum frá Sitges-strönd. Það er með þakverönd og sundlaug með nuddi en þaðan er frábært sjávarútsýni.
Herbergin á Sercotel Kalma Sitges eru með loftkælingu, ókeypis internet og hljóðeinangrun. Þau eru öll með flatskjá með gervihnattarásum, öryggishólf og minibar.
Sercotel Kalma Sitges er til húsa í fjórum aðlaðandi byggingum frá upphafi 20. aldar. Litríkar framhliðar og arkitektúr bygginganna eru dæmigerð fyrir Sitges.
Hótelið fær 8.5 í einkunn á booking.com og 9.7 í einkunn fyrir staðsetningu
Verðin
169.990 kr.
á mann í tvíbýli
219.990 kr.
á mann í einbýli
Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.
Tilboð 3
Hótel
Hotel MiM Sitges & Spa
****
Hotel MiM Sitges & Spa er aðeins 120 metrum frá Sitges-ströndinni og býður upp á heilsulind og árstíðabundna þaksundlaug. Stílhrein herbergin eru með nútímalegar innréttingar og sum bjóða upp á sjávarútsýni.
Öll rúmgóðu herbergin á Hotel MiM Sitges & Spa eru með loftkælingu, sjónvarpi og minibar. Hótelið útvegar strandhandklæði gegn endurgreiðanlega tryggingu.
Veitingastaður hótelsins býður upp á úrval af bæði staðbundinni og alþjóðlegri matargerð. Skybarinn á þakinu býður upp á sjávar- og fjallaútsýni.
Heilsulind Hotel MiM Sitges & Spa býður upp á gufubað, eimbað, skynjunarsturtur, afþreyingarsundlaug og upphituð rúm sem þú getur fengið aðgang að með sérstökum afslætti.
Hótelið fær 8.3 í einkunn á booking.com og 9.4 í einkunn fyrir staðsetningu
Verðin
169.990 kr.
á mann í tvíbýli
249.990 kr.
á mann í einbýli
Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.
Tilboðið miðast við 25 manns og gildir til 28.08.2025
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!