
Til Nice
23. - 27.apríl 2026
Tilboðið miðast við 40 manns á gengi dagsins og gildir til 29.10.2025
Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!
Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram
risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château (þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.
Hvað er hægt að gera í Nice
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Ibis Styles Nice Centre Port
⭐️⭐️⭐️
Ibis Styles Nice Centre Port 3* er steinsnar frá gamla bænum og höfninni, með björtum, hljóðeinangruðum herbergjum, loftkælingu og ókeypis Wi-Fi. Morgunverðarhlaðborð, vinalegt starfsfólk og í göngufæri á ströndina, verslanir og veitingastaði.
Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og
9,2 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
154.990 kr.
á mann í tvíbýli
219.990 kr.
á mann í einbýli
NH Nice
⭐️⭐️⭐️⭐️
Hótelið NH Nice er staðsett í 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum í Nice og höfninni, en það er með þaksundlaug sem er opin hluta ársins, gufubað og verönd. Það býður upp á ókeypis WiFi og er við hliðina á Nice Acropolis.
Herbergin á NH Nice eru í nútímalegum stíl og státa af flatskjá ásamt minibar. Öll eru með loftkælingu og sérbaðherbergi. Öll herbergin eru aðgengileg með lyftu.
Morgunverður er í boði á hverjum morgni á veitingastaðnum L'Oliveraie og á sumrin býður NH Nice 360° þakveitingastaðurinn upp á Miðjarðarhafsmatargerð í hádeginu og á kvöldin. Hótelbarinn býður upp á kokkteila sem drekka má á veröndinni í góðu veðri á sumrin, en þaðan er útsýni yfir húsþök Nice.
Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og
8,1 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
174.990 kr.
á mann í tvíbýli
249.990 kr.
á mann í einbýli
Mercure Nice Centre Notre Dame
⭐️⭐️⭐️⭐️
Mercure Nice Centre Notre Dame býður upp á sundlaug á þakinu með útsýni yfir miðbæ Nice, 2000 fermetra innri garð og verönd, 500 metra frá Nice-Ville lestarstöðinni.
Hægt er að njóta kokteila á þakbarnum, Bella Ciela.
Einnig er boðið upp á snarl allan daginn.
Hótelið býður upp á líkamsræktarstöð, 2 nuddpotta, Skylounge Bar og tvær veröndir með útsýni yfir Nice.
Promenade des Anglais er í 15 mínútna göngufjarlægð.
Jean Médecin sporvagnastoppistöðin er 260 metra frá hótelinu og Acropolis ráðstefnumiðstöðin er 5 sporvagnastoppistöðvum frá.
Hótelið fær heildareinkunina 7,8 og
9,1 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
157.990 kr.
á mann í tvíbýli
199.990 kr.
á mann í einbýli
Mercure Villeneuve Loubet Plage
⭐️⭐️⭐️⭐️
Mercure Villeneuve Loubet Plage 4* er við ströndina, með nútímalegum herbergjum, loftkælingu og ókeypis Wi-Fi. Notaleg sundlaug og sólstólar, bar/veitingaþjónusta og stutt í höfnina, veitingastaði og strandgöngur – frábær kostur fyrir afslappað frí á Rivíerunni. Stílhreint strandhótel milli Nice og Antibes!
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og
9,2 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
177.990 kr.
á mann í tvíbýli
254.990 kr.
á mann í einbýli
Radisson Blu Hotel Nice
⭐️⭐️⭐️⭐️
Radisson Blu Hotel Nice er við göngusvæðið Promenade des Anglais og býður upp á einkaströnd og þaksundlaug með víðáttumiklu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á gististaðnum, þar á meðal á ströndinni..
Gestir geta notið þess að fá sér frumlega kokteila á Pool & Bar Lounge á sumrin eða á Le 223 Lobby Bar sem er opinn allt árið um kring.
Hægt er að stunda hjólreiðar og gönguferðir í nágrenninu.
Place Massena og Avenue Jean Médecin eru í aðeins 15 mínútna fjarlægð með sporvagni nr. 2 sem er 80 metrum frá hótelinu, á Avenue de la Californie. Cannes er í 30 km fjarlægð frá gististaðnum og Nice Côte d'Azur-flugvöllurinn er í 15 mínútna fjarlægð með sporvagni.
Hótelið fær heildareinkunina 7,7 og
8,5 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
179.990 kr.
á mann í tvíbýli
249.990 kr.
á mann í einbýli
Le Meridien Nice
⭐️⭐️⭐️⭐️
Þetta hótel snýr að Miðjarðarhafinu og er staðsett við Promenade des Anglais. Það er í nokkurra skrefa fjarlægð frá gamla bænum og býður upp á þakverönd með víðáttumiklu útsýni og útisundlaug. Hótelið var enduruppgert árið 2020.
Frá veitingastað hótelsins á þakveröndinni geta gestir notið víðáttumikils sjávarútsýnis yfir Baie des Anges og Miðjarðarhafið. Morgunverður er borinn fram á hverjum morgni á Riviera Space sem býður upp á sjávarútsýni. Hægt er að snæða máltíðir á veröndinni þegar veður leyfir.
Það er einnig heilsuræktarstöð á hótelinu.
Nice-Côte d'Azur-flugvöllurinn er í 8 km fjarlægð og Nice-lestarstöðin er í aðeins 1 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og
9,6 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
224.990 kr.
á mann í tvíbýli
339.990 kr.
á mann í einbýli
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!




























