
Til Barcelona
30.september - 5.oktober 2026
Tilboðið miðast við 50 manns og gengi dagsins gildir til 12.01.2026
Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí. Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla.
Barcelona er borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelona býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.
Arkitektúr borgarinnar er æði fjölbreyttur. Turnar úr gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Þá er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí.
Göngugötur Barcelona eru vinsælar og oft margt um manninn. Frægust þeirra er Ramblan, La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur á hverju strái. Berceloneta heitir þekktasta strönd borgarinnar, þar sleikir Miðjarðarhafssólin gylltan sand og heiðblátt hafið. Barcelona er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa litríka menningu.
Hvað er hægt að gera í Barcelona
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
AC Hotel Sants by Marriott
⭐️⭐️⭐️⭐️
AC Hotel Sants er staðsett aðeins 50 metra frá lestarstöðinni í Barcelona Sants.
Veitingastaðurinn inni á hótelinu býður upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni.
AC Hotel Sants er í um 500 metra fjarlægð frá Plaça Espanya og Montjuïc. Sants-stöðin býður upp á beinan aðgang með neðanjarðarlest að Plaça Catalunya og Las Ramblas, sem og beinan aðgang að El Prat-flugvelli.
Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
254.990 kr.
á mann í tvíbýli
359.990 kr.
á mann í einbýli
NH Collection Barcelona Podium
⭐️⭐️⭐️⭐️
NH Collection Barcelona Pódium sameinar 19. aldar framhlið og nútímalega innanhússhönnun. Það er umkringt öðrum módernískum byggingum í Eixample hverfinu í Barcelona.
Hótelið er staðsett 800 metra frá Plaça Catalunya og Römblunni, nálægt Gotneska hverfinu í borginni. Ciutadella-garðurinn og Ólympíuhöfnin eru einnig í göngufæri.
NH Collection Podium Hotel býður upp á góðan aðgang að öllum hlutum borgarinnar með almenningssamgöngum. Arc de Triomf neðanjarðarlestarstöðin er aðeins 200 metra frá hótelinu.
Veitingastaður NH Collection Barcelona Pódium býður upp á Miðjarðarhafsmatargerð og þar er einnig setustofa. Hollur morgunverður er í boði á morgnana. Veitingastaðurinn er lokaður á sumarmánuðum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
274.990 kr.
á mann í tvíbýli
399.990 kr.
á mann í einbýli
Hotel Barcelona Catedral
⭐️⭐️⭐️⭐️
Hótelið er staðsett 100 metra frá dómkirkjunni í Barcelona, í sögufræga gotneska hverfinu með frábært útsýni yfirborgina af þakverönd.
Skapandi Miðjarðarhafsmatargerð er framreidd á veitingastað hótelsins, 4 Capellans, sem býður upp á matseðil fyrir þá sem eru með glútenóþol. Það er fjölbreytt úrval af veitingastöðum og tapasbörum í innan við 5 mínútna göngufjarlægð, þar á meðal margir í vinsæla hverfinu El Born.
Hotel Barcelona Catedral 4 Sup er 450 metra frá Plaza Catalunya-torginu, en Las Ramblas er í 5 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 9,3 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
289.990 kr.
á mann í tvíbýli
447.990 kr.
á mann í einbýli
H10 Madison
⭐️⭐️⭐️⭐️
H10 Madison 4* er skref frá dómkirkjunni og Pl. Catalunya. Nútímaleg, hljóðeinangruð herbergi með loftkælingu og ókeypis Wi-Fi, frábært morgunverðarhlaðborð og veitingastaður/bar. Þakverönd með sundlaug og útsýni yfir borgina – fullkomið fyrir stutt borgarfrí með lúxusblæ. Stílhreint boutique-hótel í Gotneska hverfinu!
Hótelið fær heildareinkunn 9,2 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
299.990 kr.
á mann í tvíbýli
445.990 kr.
á mann í einbýli
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!




















