
Til Barcelona
29.september - 3.oktober 2026
Tilboðið miðast við 50 manns og gengi dagsins gildir til 12.01.2026
Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí. Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla.
Barcelona er borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelona býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.
Arkitektúr borgarinnar er æði fjölbreyttur. Turnar úr gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Þá er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí.
Göngugötur Barcelona eru vinsælar og oft margt um manninn. Frægust þeirra er Ramblan, La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur á hverju strái. Berceloneta heitir þekktasta strönd borgarinnar, þar sleikir Miðjarðarhafssólin gylltan sand og heiðblátt hafið. Barcelona er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa litríka menningu.
Hvað er hægt að gera í Barcelona
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Leonardo Hotel Barcelona Gran Via
⭐️⭐️⭐️
Þetta rúmgóða og nútímalega hótel, Leonardo Hotel Barcelona Gran Via, er staðsett í Eixample hverfinu og byggt árið 2004. Það býður upp á stór almenningsrými klædd marmara.
Herbergin eru með flatskjásjónvarpi, WiFi, öryggishólfi, skrifborði, minibar og sérbaðherbergi með snyrtivörum.
Góð staðsetning fyrir ferðamenn, auðvelt er að ganga að Gotneska hverfinu og Römblunni, eða að aðdráttaraflinu á Montjuïc. Helstu viðskiptahverfi borgarinnar eru einnig í nágrenninu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
189.990 kr.
á mann í tvíbýli
259.990 kr.
á mann í einbýli
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!








