
Til Belfast
14.-17. maí 2026
Tilboðið miðast við 150 manns og gengi dagsins gildir til 4.3.2026
Belfast (upphaflega Béal Feirste) stendur við mynni árinnar Lagan og dregur nafn sitt af þeirri staðsetningu, þar sem orðið ,,béal“ þýðir munnur og ,,feirste“ er sandbakki.
Eftir margra áratuga átakasögu, hefur nú lengi ríkt friður í höfuðborg Norður-Íra, Belfast. Í dag iðar borgin af lífi og fjöri, hér er mikið um háskólastúdenta, enda 6 slíkir skólar í Belfast, þar á meðal Queen’s University sem hefur prýtt lista yfir bestu háskóla heims í mörg ár. Hér er úrval af skemmtilegri og áhugaverðri afþreyingu, fullt af frábærum veitingastöðum, flottum pöbbum og skemmtistöðum. Stemmingin er afslöppuð og næs. Belfast er æðislegur staður að heimsækja!
Belfast öðlaðist á sínum tíma heimsathygli í hinum svokölluðu Vandræðum, The Troubles. Átökin stóðu yfir um áratuga skeið, allt frá 1968 til 1998, og segja má að allann þann tíma hafi geysað hatrömm og vægðarlaus borgararstyrjöld, þar sem tókust á mótmælendatrúaðir sambandssinnar, hliðhollir Bretum, og kaþólsk trúaðir íbúar sem sameinast vildu Írlandi. Þegar yfir lauk lágu um 3600 íbúar í valnum, auk tuga þúsunda sem særðust. Ýmsir staðir og söfn gera þessari sögu góð skil.
Hvað er hægt að gera í Belfast
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
Holiday Inn Belfast
****
Holiday Inn Belfast er nútímalegt hótel í hjarta Belfast, steinsnar frá verslunum, veitingastöðum og samgöngum. Hótelið býður upp á rúmgóð, loftkæld herbergi með flatskjá, frábærum rúmum og te-/kaffiaðstöðu. Gestir njóta opins og notalegs lobby-svæðis með Starbucks, veitingastað, 24/7 herbergisþjónustu og líkamsrækt. Fullkominn kostur fyrir bæði hópa og einstaklinga.
Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
159.990 kr.
á mann í tvíbýli
209.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
Moxy Belfast City
*** / ****
Moxy Belfast City er stílhreint og lifandi hótel í hjarta Belfast, fullkomið fyrir hópa sem vilja nútímalega upplifun í frábæra stemningu.
Hótelið státar af þægilegum og smart herbergjum, hlýlegri móttöku og skemmtilegu andrúmslofti þar sem gestir geta hittst, unnið eða slakað á.
Hótelið er vel staðsett, alveg í hjarta borgarinnar, í göngufæri frá verslunum, veitingastöðum og áhugaverðum stöðum. Hótelið er frábær kostur fyrir hópa sem vilja þægilegt, miðlægt og skemmtilegt "heimili" á meðan á ferðinni stendur
Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
164.990 kr.
á mann í tvíbýli
214.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
ibis Belfast City Centre
***
Þetta Ibis-hótel er staðsett í miðbæ Belfast og býður upp á nútímaleg herbergi með gervihnattasjónvarpi, í 5 mínútna göngufjarlægð frá næturlífi og börum Belfast.
Öll herbergi hótelsins eru búin flatskjásjónvarpi, Wi Fi aðgangi, te/kaffiaðstöðu og sérbaðherbergi með sturtu.
Herbergin eru einnig með loftkælingu og skrifborði.
Helstu verslanir Belfast eru allar í innan við 10 mínútna göngufjarlægð. Castle Court-verslunarmiðstöðin er í aðeins 2 mínútna göngufjarlægð og Belfast-dómkirkjan er í 10 mínútna göngufjarlægð. Grand Opera House er í 500 metra fjarlægð frá hótelinu.
Hótelið fær heildareinkunn 7,9 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
169.990 kr.
á mann í tvíbýli
219.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
Maldron Hotel Belfast City
****
Maldron Hotel Belfast City er glæsilegt og nútímalegt hótel staðsett á Brunswick Street, aðeins örfáum skrefum frá helstu kennileitum borgarinnar—Grand Opera House, Belfast City Hall og fjölbreyttu úrvali veitingastaða, verslana og menningarviðburða.
Hótelið er einstaklega vel í stakk búið fyrir bæði hópa og einstaklinga sem vilja dvelja í miðju borgarinnar með öllum helstu þægindum innan seilingar.
Á hótelinu er einnig notaleg Grain & Grill veitingastaða- og barlounge, þar sem boðið er upp á ljúffengar máltíðir, bæði klassískar og fjölbreyttar alþjóðlegar. Á morgnana geta gestir byrjað daginn á fjölbreyttu og góðu Maldron “Vitality Breakfast” sem hentar jafnt smakki sem hollustuunnendum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
189.990 kr.
á mann í tvíbýli
249.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
Leonardo Hotel Belfast
****
Leonardo Hotel Belfast er staðsett við hlið ráðhúss og óperuhúss Belfast. Það státar af rúmgóðum herbergjum með flatskjásjónvarpi, sólarhringsmóttöku og veitingastað sem framreiðir nútímalega matargerð. Wi-Fi er í boði á öllu hótelinu.
Stílhrein svefnherbergin á Leonardo Hotel Belfast eru með Dream rúmum með skörpum hvítum rúmfötum og stóru vinnurými. Rúmgóð baðherbergin státa af heilsulindarsnyrtivörum.
Morgunverðarhlaðborð er í boði, veldu úr morgunkorni, heitum morgunverðarvörum, kökum og hollum morgunverðarvörum til að byrja daginn á réttan hátt.
Nútímalegi veitingastaðurinn býður upp á alþjóðlegan kvöldverðarseðil. Barinn býður upp á hádegismat og snarl ásamt úrvali af kaffi og drykkjum.
Leonardo Hotel Belfast - Fyrrum Jurys Inn býður upp á fatahreinsun og þvottaþjónustu. Almenningsbílastæði eru í boði á 2 öruggum bílastæðum í nágrenninu, með afsláttarverði í boði.
Gestir geta notið þess að versla á Donegall Place, Castlecourt og Victoria Square, allt í innan við 10 mínútna göngufjarlægð. George Best City-flugvöllurinn er í aðeins 4,8 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
179.990 kr.
á mann í tvíbýli
234.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
Clayton Hotel Belfast City
****
Clayton Hotel Belfast City er stílhreint hótel í miðbæ Belfast, aðeins örfáum skrefum frá City Hall, Grand Opera House og vinsælum veitingastöðum og verslunum.
Hótelið státar af rúmgóðum, nútímalegum herbergjum með loftkælingu, þægilegum rúmum, vinnuaðstöðu og flatskjá.
Staðsetningin er ein sú allra besta í borginni—göngufæri við lestarstöðina Great Victoria Street, St. George’s Market og helstu menningar- og skemmtisvæði Belfast. Með framúrskarandi þjónustu, nútímalegum aðbúnaði og hlýlegu andrúmslofti er Clayton Hotel Belfast City frábær kostur
Hótelið fær heildareinkunn 8,1 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
169.990 kr.
á mann í tvíbýli
209.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!





























