
Til Nice
17.- 21.september 2026
Tilboðið miðast við 12 manns á gengi dagsins og gildir til 2.03.2026
Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!
Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram
risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château (þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.
Hvað er hægt að gera í Nice
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Ibis Styles Nice Centre Port
⭐️⭐️⭐️
Ibis Styles Nice Centre Port 3* er steinsnar frá gamla bænum og höfninni, með björtum, hljóðeinangruðum herbergjum, loftkælingu og ókeypis Wi-Fi. Morgunverðarhlaðborð, vinalegt starfsfólk og í göngufæri á ströndina, verslanir og veitingastaði.
Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og
9,2 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
239.990 kr.
á mann í tvíbýli
327.990 kr.
á mann í einbýli
Holiday Inn Nice
Port St LAurent by IHG
⭐️⭐️⭐️⭐️
Holiday Inn Nice – Port St Laurent 4* (IHG) er við ströndina í Saint-Laurent-du-Var, skref frá sjávarsíðunni og verslunarmiðstöðinni Cap3000. Nútímaleg, loftkæld herbergi (sum með sjávarútsýni), góð morgunverðarhlaðborð og veitingastaður með verönd. Stutt í flugvöllinn og miðbæ Nice– fullkomið fyrir sólarfrí og stuttar borgarferðir.
Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og
8,8 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
249.990 kr.
á mann í tvíbýli
359.990 kr.
á mann í einbýli
Holiday Inn Nice by IHG
⭐️⭐️⭐️⭐️
Þetta Holiday Inn er staðsett í hjarta Nice, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá fræga Promenade des Anglais. Það býður upp á nútímalegt gistirými og er með æfingamiðstöð með sjávarútsýni og er opin allan sólarhringinn.
Hótelið er einnig í samstarfi við tvær einkastrendur í nágrenninu. Gestum geta nýtt sér nútímalega aðstöðu hótelsins á borð við sólstofu og æfingamiðstöð.
Veitingastaðurinn býður upp á rétti úr lífrænum hráefnum sem njóta má á veröndinni. Kokteilbarinn framreiðir drykki frá hádegi til miðnættis og er þar er einnig happy hour.
Holiday Inn Nice er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bæ Nice og sjónum. Alþjóðaflugvöllurinn í Nice er í 15 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og
9,3 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
262.990 kr.
á mann í tvíbýli
376.990 kr.
á mann í einbýli
AC Hotel by Marriott Nice
⭐️⭐️⭐️⭐️
AC Hotel by Marriott Nice er staðsett í nokkurra skrefa fjarlægð frá Promenade des Anglais í Nice og 1,6 km frá gamla bænum í Nice.
Frá miðjum maí til byrjun október geta gestir synt í sundlauginni á þakinu eða notið drykkjar eða máltíða á þakveröndinni.
Sundlaugin er árstíðabundin og er venjulega opin frá 15. maí til byrjun október, allt eftir veðri.
Herbergin og svíturnar eru með loftkælingu, litlum ísskáp og flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum. Sérbaðherbergin eru með baðkari eða sturtu, hárþurrku og ókeypis snyrtivörum.
Gestir geta slakað á í Zen-garði hótelsins, sem er opinn allan sólarhringinn.
Nice Côte d'Azur-flugvöllurinn er í 5 km fjarlægð og beinar almenningssamgöngur eru í boði frá Promenade des Anglais. Einkabílastæði eru í boði á staðnum, háð framboði og gegn gjaldi.
Hótelið fær heildareinkunina
8,0 og
9,0 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
299.990 kr.
á mann í tvíbýli
437.990 kr.
á mann í einbýli
Radisson Blu Hotel Nice
⭐️⭐️⭐️⭐️
Radisson Blu Hotel Nice er við göngusvæðið Promenade des Anglais og býður upp á einkaströnd og þaksundlaug með víðáttumiklu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á gististaðnum, þar á meðal á ströndinni..
Gestir geta notið þess að fá sér frumlega kokteila á Pool & Bar Lounge á sumrin eða á Le 223 Lobby Bar sem er opinn allt árið um kring.
Hægt er að stunda hjólreiðar og gönguferðir í nágrenninu.
Place Massena og Avenue Jean Médecin eru í aðeins 15 mínútna fjarlægð með sporvagni nr. 2 sem er 80 metrum frá hótelinu, á Avenue de la Californie. Cannes er í 30 km fjarlægð frá gististaðnum og Nice Côte d'Azur-flugvöllurinn er í 15 mínútna fjarlægð með sporvagni.
Hótelið fær heildareinkunina 7,7 og
8,5 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
309.990 kr.
á mann í tvíbýli
459.990 kr.
á mann í einbýli
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
























