
Til Rómar
24. - 27. Sept. 2026
Tilboðið miðast við 13 manns og gengi dagsins gildir til 16.3.2026
Róm eða borgin eilífa er eitt riasvaxið listasafn full af menningu, tísku, gómsætum mat og sögufrægu stöðum og byggingum. Hún var alla vega ekki byggð á einum degi.
Ítalía er draumastaður í hugum margra. Landið býr yfir magnaðri sögu og menningu, þar eru víða stórbrotnar byggingar, náttúrufegurðin er einstök, og svo auðvitað það mikilvægasta: Maturinn! Ofan á alla þessa kosti bætist dásamlegt veðurfar, og þjóðin sem þarna býr. Það er bara eitthvað við Ítali, sem erfitt er að útskýra. Þeir eru bara svo töff!
Róm er svo ótrúleg, gamla borgin, borg miðaldarinnar, endurreisnartímans. Glæsileg torg, kirkjur, þröng sund, Pantheon, Navona og Gyðingahverfið, magnað.
Miðborg Rómar skiptist í níu hverfi en það er nánast eingöngu miðborgin sem er dvalarstaður 99 prósenta þeirra sem þangað koma til heimsóknar. Eru enda úthverfi borgarinnar töluvert nýlegri en gamla miðborgin og engin sérstök saga eða minjar þar sem heilla ferðamenn mikið nema hræbillegar mafíublokkir þyki spennandi sýn.
En borgin er stútfull af frábærum veitingastöðum, börum, búðum og skemmtistöðum. Það leiðist alla vega engum í Róm!
Hvað er hægt að gera í Róm
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hotel Virgilio
***
Hotel Virgilio er notalegt og vel staðsett hótel í hjarta Rómar, aðeins stutt frá Termini og helstu kennileitum eins og Trevi‑gosbrunninum og Colosseum. Hótelið er í sögulegri byggingu með klassískum innréttingum og býður upp á 42 þægileg herbergi með loftkælingu, flatskjá og ókeypis WiFi. Á morgnana er boðið upp á ríkulegt morgunverðarhlaðborð, og gestir geta notið afslappaðrar stemningar á hlýlegum vínbar hótelsins
Hótelið fær heildareinkunn
8,9 og
9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
172.990 kr.
á mann í tvíbýli
227.990 kr.
á mann í einbýli
Colonna Palace
****
Colonna Palace Hotel er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel í hjarta Rómar, staðsett við sögufræga Piazza Montecitorio. Hótelið býður upp á rúmgóð og fallega innréttuð herbergi í kassískri ítalskri hönnun. Á þakveröndinni er heillandi sólbaðsaðstaða og útsýni yfir helstu kennileiti borgarinnar. Hér sameinast ítalski sjarminn í sögulegu umhverfi og hlýleg, vönduð þjónusta
Hótelið fær heildareinkunn
8,2 og
9,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
171.990 kr.
á mann í tvíbýli
189.990 kr.
á mann í einbýli
Albani Hotel Roma
****
Albani Hotel Roma er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel með einstökum ítöslkum retró stíl með björtum, rúmgóðum herbergjum sem flest hafa útsýni yfir Villa Albani. Hótelið stendur í fallegu hverfi skammt frá Villa Borghese og Via Veneto. Gestir njóta ríkulegs morgunverðar, topp þjónustu, notalegum bar og frábærri aðstöðu fyrir hópa sem vilja njóta í botn.
Hótelið fær heildareinkunn
8,2 og
8,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
159.990 kr.
á mann í tvíbýli
195.990 kr.
á mann í einbýli
Best Western Hotel Piccadilly
****
Best Western Hotel Piccadilly er hlýlegt og fallegt hótel í líflega San Giovanni-hverfinu, skrefum frá Lateran-basilíkunni og stutt frá Colosseum.
Hótelið býður upp á nútímaleg, hljóðeinangruð herbergi og glæsilega morgunverðarsal með útsýni yfir Róm. Með frábæra staðsetningu, góðri þjónustu og ókeypis Wi-Fi er þetta fullkomin borgardvöl.
Hótelið fær heildareinkunn
8,2 og
8,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
160.990 kr.
á mann í tvíbýli
205.990 kr.
á mann í einbýli
The Social Hub Rome
****
The Social Hub Rome býður upp á stílhreina gistingu í hinu líflega San Lorenzo‑hverfi, skammt frá Termini.
Gestir njóta þægilegra herbergja, glæsilegrar þaklaugar, líkamsræktaraðstöðu og notalegs setusvæði.
Hótelið sameinar góðan mat, þjónustu og frábæra staðsetningu sem gerir það að hentugu "heimili" í Róm
Hótelið fær heildareinkunn
8,7 og
7,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
161.990 kr.
á mann í tvíbýli
207.990 kr.
á mann í einbýli
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

























