
Til Belfast
15.-18. október 2026
Tilboðið miðast við 120 manns og gengi dagsins gildir til 13.2.2026
Belfast (upphaflega Béal Feirste) stendur við mynni árinnar Lagan og dregur nafn sitt af þeirri staðsetningu, þar sem orðið ,,béal“ þýðir munnur og ,,feirste“ er sandbakki.
Eftir margra áratuga átakasögu, hefur nú lengi ríkt friður í höfuðborg Norður-Íra, Belfast. Í dag iðar borgin af lífi og fjöri, hér er mikið um háskólastúdenta, enda 6 slíkir skólar í Belfast, þar á meðal Queen’s University sem hefur prýtt lista yfir bestu háskóla heims í mörg ár. Hér er úrval af skemmtilegri og áhugaverðri afþreyingu, fullt af frábærum veitingastöðum, flottum pöbbum og skemmtistöðum. Stemmingin er afslöppuð og næs. Belfast er æðislegur staður að heimsækja!
Belfast öðlaðist á sínum tíma heimsathygli í hinum svokölluðu Vandræðum, The Troubles. Átökin stóðu yfir um áratuga skeið, allt frá 1968 til 1998, og segja má að allann þann tíma hafi geysað hatrömm og vægðarlaus borgararstyrjöld, þar sem tókust á mótmælendatrúaðir sambandssinnar, hliðhollir Bretum, og kaþólsk trúaðir íbúar sem sameinast vildu Írlandi. Þegar yfir lauk lágu um 3600 íbúar í valnum, auk tuga þúsunda sem særðust. Ýmsir staðir og söfn gera þessari sögu góð skil.
Hvað er hægt að gera í Belfast
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Holiday Inn Belfast
⭐️⭐️⭐️⭐️
Holiday Inn Belfast er nútímalegt hótel í hjarta Belfast, steinsnar frá verslunum, veitingastöðum og samgöngum. Hótelið býður upp á rúmgóð, loftkæld herbergi með flatskjá, frábærum rúmum og te-/kaffiaðstöðu. Gestir njóta opins og notalegs lobby-svæðis með Starbucks, veitingastað, 24/7 herbergisþjónustu og líkamsrækt. Fullkominn kostur fyrir bæði hópa og einstaklinga.
Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
136.990 kr.
á mann í tvíbýli
182.990 kr.
á mann í einbýli
Moxy Belfast City
⭐️⭐️⭐️
Moxy Belfast City er staðsett í hjarta miðbæjar Belfast, nálægt dómkirkjuhverfinu og kaffihúsum, börum og veitingastöðum þar. Verslunarmiðstöðvarnar Victoria Square og CastleCourt eru báðar í 10 mínútna göngufjarlægð.
Barinn Moxy býður upp á morgunverð, smárétti og kokteila allan daginn í stílhreinu umhverfi. Snarl og drykkir eru einnig í boði allan sólarhringinn í Grab & Go söluturninum við móttökuna.
Moxy Belfast City er nálægt öllum helstu samgöngutengingum, með strætó- og lestarleiðum frá nálægri Belfast Grand Central stöðinni. Ferðarútur eru einnig í nágrenninu. Næstu flugvellir eru George Best Belfast City flugvöllur (5,5 km frá gististaðnum) og Belfast alþjóðaflugvöllur (22,4 km frá gististaðnum).
Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
143.990 kr.
á mann í tvíbýli
184.990 kr.
á mann í einbýli
Leonardo Hotel Belfast
⭐️⭐️⭐️⭐️
Leonardo Hotel Belfast er staðsett við hlið ráðhúss og óperuhúss Belfast. Það státar af rúmgóðum herbergjum með flatskjásjónvarpi, sólarhringsmóttöku og veitingastað sem framreiðir nútímalega matargerð. Wi-Fi er í boði á öllu hótelinu.
Stílhrein svefnherbergin á Leonardo Hotel Belfast eru með Dream rúmum með skörpum hvítum rúmfötum og stóru vinnurými. Rúmgóð baðherbergin státa af heilsulindarsnyrtivörum.
Morgunverðarhlaðborð er í boði, veldu úr morgunkorni, heitum morgunverðarvörum, kökum og hollum morgunverðarvörum til að byrja daginn á réttan hátt.
Nútímalegi veitingastaðurinn býður upp á alþjóðlegan kvöldverðarseðil. Barinn býður upp á hádegismat og snarl ásamt úrvali af kaffi og drykkjum.
Leonardo Hotel Belfast - Fyrrum Jurys Inn býður upp á fatahreinsun og þvottaþjónustu. Almenningsbílastæði eru í boði á 2 öruggum bílastæðum í nágrenninu, með afsláttarverði í boði.
Gestir geta notið þess að versla á Donegall Place, Castlecourt og Victoria Square, allt í innan við 10 mínútna göngufjarlægð. George Best City-flugvöllurinn er í aðeins 4,8 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
153.990 kr.
á mann í tvíbýli
203.990 kr.
á mann í einbýli
voco Belfast by IHG
⭐️⭐️⭐️⭐️
Í líflega Gasworks hverfinu í Belfast er fjögurra stjörnu hótelið voco Belfast með stílhreinum veitingastað og kokteilbar.
The Pomo Restaurant er með útsýni yfir Gasworks vatnið og býður upp á ekta Belfast matseðil og morgunverðarmatseðil. Gestir geta notið úrvals af snarli, góðum vínum og bjór á krana á The Gasworks Bar.
The Voco Belfast er aðeins í 10 mínútna göngufjarlægð frá miðbæ Belfast og í 15 mínútna akstursfjarlægð frá Belfast kastala. SSE Arena er í rétt rúmum kílómetra fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 8,5 fyrir staðsetningu á booking.com
154.990 kr.
á mann í tvíbýli
209.990 kr.
á mann í einbýli
Maldron Hotel Belfast City
⭐️⭐️⭐️⭐️
Maldron Hotel Belfast City er glæsilegt og nútímalegt hótel staðsett á Brunswick Street, aðeins örfáum skrefum frá helstu kennileitum borgarinnar—Grand Opera House, Belfast City Hall og fjölbreyttu úrvali veitingastaða, verslana og menningarviðburða.
Hótelið er einstaklega vel í stakk búið fyrir bæði hópa og einstaklinga sem vilja dvelja í miðju borgarinnar með öllum helstu þægindum innan seilingar.
Á hótelinu er einnig notaleg Grain & Grill veitingastaða- og barlounge, þar sem boðið er upp á ljúffengar máltíðir, bæði klassískar og fjölbreyttar alþjóðlegar. Á morgnana geta gestir byrjað daginn á fjölbreyttu og góðu Maldron “Vitality Breakfast” sem hentar jafnt smakki sem hollustuunnendum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
159.990 kr.
á mann í tvíbýli
219.990 kr.
á mann í einbýli
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

























