Til Frankfurt


3.-6.september 2026

Tilboðið miðast við 24 manns og gengi dagsins gildir til 9.02.2026


Í Frankfurt eru mörg fræg söfn, sögulegar byggingar og líflegt lista- og menningarlíf, fullt af krám og góðum veitingastöðum, frábær verslunargata. Allt sem þarf í góðu borgarfríi. 

 Frankfurt er fyrst og fremst þekkt fyrir að vera höfuðborg viðskipta í Þýskalandi i. Þessi borg er ólík öllum öðrum þýskum borgum. Það glampar á gler, stál og steypu í skýjakljúfunum sem hýsa til að mynda höfuðstöðvar Evrópubankans ásamt einni af stærstu kauphöllum heims. Það þykir einnig eftirsóknarvert að búa í henni, en um það bil 5,5 milljónir búa á Frankfurt svæðinu en einungis um 600.000 í borginni sjálfri. 

Borgin liggur við ána Main – enda heitir hún Frakfurt am Main.  Áin er mikil lífæð og eru flutningar margskonar varnings eftir henni til ýmissa áfangastaða daglegt brauð.  Fyrr á öldum var Frankfurt miðpunktur hins Heilaga Rómaveldis þar sem kóngar og síðar keisarar voru krýndir.  Rithöfundurinn og mannvinurinn Johann Wolfgang von Goethe fæddist í Frankfurt og vísindamaðurinn Athur Schopenhauer er grafinn þar. 


 Hvað er hægt að gera í Frankfurt

Fara á Römerberg miðaldatorgið og skoða Réttlætisbrunninn (Gerechtigkeitsbrunnen)

Skoða Kaiserdom kirkjuna og 

Pálmagarðinn þar sem ræktaðar eru plöntur frá öllum heimshornum

Fara yfir ána til Sachsenhausen,  sem er frægt hverfi fyrir hina mörgu eplavínbari sem þar eru ásamt mörgu öðru áhugaverðu. 

Fara upp í Mainturninn sem er 200 m hár með frábæru útsýni yfir borgina 

Bátsferð á ánni Mainz er frábær hugmynd

Létta pyngjuna á Zeil verslunargötunni.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair

  • 23 kg innritaður farangur
  • Ein handtaska


Flogið út

Brottför kl. 07:20 frá Keflavík → lending í Frankfurt kl. 13:00  

(beint flug, ~3klst 40 mín)

Flogið heim

Heimferð: kl. 14:00 frá Frankfurt →
lending í Keflavík kl. 15:45

(beint flug, ~3klst 45 mín)

Gisting

3 nætur á hóteli miðsvæðis

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli

ca. 25 mín akstur

Fararstjórn

Sé þess óskað   - gegn gjaldi.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Holiday Inn Frankfurt

⭐️⭐️⭐️⭐️

Hótelið er staðsett í Frankfurt am Main.

Nútímalegt hótel með glæsilegum og rúmgóðum herbergjum og loftkæling, flatskjá og öryggishólfi. 

Frítt wifi er alls staðar á hótelinu.


Á hótelinu er veitingastaður, bar og líkamsræktarstöð. Frankfurt Messi ráðstefnumiðstöðin og aðalturninn er í 750 metra fjarlægð. Gamli bærinn í Frankfurt og verslunarhverfið í miðbænum er í innan við 20 mínútna göngufjarlægð.


Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,2  fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

149.990 kr.

á mann í tvíbýli

179.990 kr.

á mann í einbýli


Hilton Garden Inn Frankfurt City Centre

⭐️⭐️⭐️⭐️

Hilton Garden Inn Frankfurt City Centre er með garð, líkamsræktarstöð, bar og sameiginlega setustofu í Frankfurt/Main. Meðal aðstöðu á þessum gististað eru veitingastaður, sólarhringsmóttaka og herbergisþjónusta, ásamt ókeypis WiFi.


Morgunverðarhlaðborð er í boði á hverjum morgni.


Vinsælir áhugaverðir staðir nálægt Hilton Garden Inn Frankfurt City Centre eru meðal annars Städel-safnið, Þýska kvikmyndasafnið og Goethe-húsið.
Næsti flugvöllur er Frankfurt-flugvöllur, 13 km frá gististaðnum.


Hótelið fær heildareinkunina 8,1 og 7,7  fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

154.990 kr.

á mann í tvíbýli

189.990 kr.

á mann í einbýli


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. hopar@tripical.com