Oddfellow til Sitges


9.-13. október 2026


Tilboðið miðast við 60 manns á gengi dagsins og gildir til 6.2.2026


Fjölbreytileikanum fagnað í suðrænni paradís!
35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin sólríka og sykursæta Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheita næturlífi og frábæru festivölum. Yndislegur staður!

Fjölbreytileikanum er fagnað í þessum dásemdar smábæ með dansi og tónlist hvenær sem færi gefst. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur, hvers kyns eða kynhneigðar sem það er. Hér eru allir vinir, og öllum áhyggjum og óþarfa leiðindum er góðfúslega vísað frá. Litlir götustígar skera bæjarkjarnann þvers og kruss. Alls staðar eru litlar verslanir, skemmtilegir veitingastaðir og krár, þar sem auðvelt er að finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem lagst er í gott sólbað á einni af þeim 13 ströndum sem tilheyra svæðinu.

Sitges er stundum nefnd Festivalabærinn. Árið um kring standa yfir hátíðir af ýmsu tagi. Þekktust er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming yfirtaka bæinn. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt öðrum minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun


Hvað er hægt að gera í Sitges

Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði

Fjöldi dásamlegra stranda til að njóta góða veðursins og kannski frískandi drykk

Barcelona er skammt undan og auðvelt að taka sér dagsferð þangað með lest.

Hin fallega Bartomeu kirkja frá 17. öld stendur við ströndina rétt neðan við bæjarkjarnann

Vinsælur hjólreiðatúrar til vínbænda sem hróðugir bjóða upp á smakk af framleiðslu sinni

Hér er svo gott að liggja í leti og slaka á, tana og njóta, borða, drekka, versla, elska!


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með áætlunarflugi Icelandair

  • 23 kg innritaður farangur
  • 1 x handfarangur

Flogið út

Flogið með Icelandair  kl. 08:25. Lent í Barcelona kl: 14:45 að staðartíma

Flogið heim

Flogið með Icelandair  frá Barcelona  kl. 15:45 Lent í Keflavík kl. 18:20 að staðartíma

Gisting

4 nætur á hóteli í miðborg Sitges. Innifalið er morgunverður, wi-fi og citytax.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli, aksturstími ca 40 mín

Fararstjórn

Skemmtilegur Tripical fararstjóri.

Hægt að bóka gegn gjaldi.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Hótel (staðfest verð)

Hotel MiM Sitges & Spa
****

Hotel MiM Sitges & Spa er aðeins 120 metrum frá Sitges-ströndinni og býður upp á heilsulind og árstíðabundna þaksundlaug. Stílhrein herbergin eru með nútímalegar innréttingar og sum bjóða upp á sjávarútsýni.


Öll rúmgóðu herbergin á Hotel MiM Sitges & Spa eru með loftkælingu, sjónvarpi og minibar. Hótelið útvegar strandhandklæði gegn endurgreiðanlega tryggingu.


Veitingastaður hótelsins býður upp á úrval af bæði staðbundinni og alþjóðlegri matargerð. Skybarinn á þakinu býður upp á sjávar- og fjallaútsýni.


Heilsulind Hotel MiM Sitges & Spa býður upp á gufubað, eimbað, skynjunarsturtur, afþreyingarsundlaug og upphituð rúm sem þú getur fengið aðgang að með sérstökum afslætti.


Hótelið fær 8.2 í einkunn á booking.com og 9.3 í einkunn fyrir staðsetningu


186.990 kr.

á mann í tvíbýli

248.990 kr.

á mann í einbýli


Hótel (staðfest verð)

Sunway Playa Golf & Spa er dásamlegur áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem ströndin í Sitges hefur upp á að bjóða. Hótelið er staðsett beint við sjávarsíðuna, í rólegri hluta bæjarins, og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Miðjarðarhafið.


Hér mætast afþreying og slökun á fullkominn hátt. Gestir geta nýtt sér tvær útisundlaugar, glæsilega heilsulind á efstu hæðinni með útsýni yfir hafið, og ókeypis lánshjól til að skreppa inn í líflegan miðbæinn. Með sína eigin veitingastaði sem framreiða gæðamat og fallegar svalir á flestum herbergjum, er þetta fullkominn staður fyrir sólarunnendur, fjölskyldur og þá sem vilja njóta lífsins í fyrsta flokki.


Heildareinkunn 8.5 og 8,9  fyrir staðsetningu á booking.com 

.

189.990 kr.

á mann í tvíbýli

245.990 kr.

á mann í einbýli


Hótel (staðfest verð)

ME Sitges Terramar er eitt djarfasta og flottasta hönnunarhótel strandarinnar, þar sem nútímalegur lúxus og listræn stemning mætast. Hótelið er staðsett á kyrrlátum stað við enda strandlengjunnar í Sitges og býður upp á ómótstæðilegt útsýni yfir Miðjarðarhafið.


Hótelið er þekkt fyrir framúrskarandi hönnun, líflegt sundlaugarsvæði og hinn eftirsótta RADIO Rooftop Bar, þar sem hægt er að njóta kokteila undir stjörnunum með besta útsýni bæjarins. Með áherslu á persónulega þjónustu, hágæða matargerð og slökun í heilsulindinni, er ME Sitges Terramar fullkominn áfangastaður fyrir þá sem leita að stíl, fágun og flottri stemningu við sjávarsíðuna.


Heildareinkunn 8.7 og 8,9  fyrir staðsetningu á booking.com 

.

199.990 kr.

á mann í tvíbýli

276.990 kr.

á mann í einbýli


Hótel (staðfest verð)

Sabàtic Sitges er hágæða lífstílshótel sem fangar kjarna Miðjarðarhafsins með fáguðum en afslöppuðum stíl. Hótelið er hluti af Autograph Collection, sem tryggir einstaka hönnun og persónulega upplifun í hverju horni.


Staðsett í hinum dásamlega strandbæ Sitges, býður hótelið upp á stórkostlegt útsýni yfir hafið, stílhreinar svalir á öllum herbergjum og dásamlegt sundlaugarsvæði þar sem tíminn virðist standa í stað. Með áherslu á staðbundna matargerð, dýrindis kokteila og lifandi tónlist, er Sabàtic hinn fullkomni staður fyrir þá sem vilja njóta lúxus, kyrrðar og sólar í hönnunarvænni umgjörð.


Heildareinkunn 8.9 og 9,0  fyrir staðsetningu á booking.com 

.

209.990 kr.

á mann í tvíbýli

289.990 kr.

á mann í einbýli


Hótel (ekki laust)

Calipolis er staðsett miðsvæðis í Sitges og við ströndina. Það býður upp á sólarhringsmóttöku, útisundlaug, líkamsræktarstöð, herbergi sem eru með loftkælingu og ókeypis WiFi.

Herbergin á Calipolis eru glæsileg og þau státa af flatskjá og sérbaðherbergi með hárþurrku. 

Boðið er upp á ókeypis afnot af sundlaugarhandklæðum.

Veitingastaður hótelsins, Infinity Restaurant, býður upp á Miðjarðarhafsrétti við hliðina á sundlauginni. 

Það er einnig bar til staðar og sumarverönd með útsýni yfir sjóinn og göngusvæðið.

Hægt er að leigja hjól í móttökunni.


Heildareinkunn 8.6 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com 

.

165.990 kr.

á mann í tvíbýli

222.990 kr.

á mann í einbýli


Hótel (ekki laust)

Eurostars Sitges
*****

Eurostars Sitges er 2 km frá ströndinni í Sitges og býður upp á útsýni yfir Miðjarðarhafið og Terramar-golfklúbbinn. Ókeypis WiFi og ókeypis bílastæði eru í boði.


Herbergin eru með loftkælingu, einkaverönd með útsýni, flatskjá, öryggishólf fyrir fartölvu, minibar, te-/kaffivél og sérbaðherbergi með hárþurrku og baðsloppum.


Gististaðurinn býður upp á veitingastaði, bari, slökunarsetustofu og boutique-veitingastað. Gestir geta notið fínna à la carte-rétta, víns, snarls og kokkteila.


Eurostars Sitges býður upp á heilsumiðstöð með heilsulind, innisundlaug, heitum potti, gufubaði og eimbaði gegn aukagjaldi. Einnig er boðið upp á meðferðir og snyrtimeðferðir.


Gististaðurinn er með sólarhringsmóttöku og upplýsingaborð ferðaþjónustu. Gestir eru með ókeypis aðgang að líkamsræktaraðstöðu sem er opin allan sólarhringinn.


Miðbær Sitges er í 3,5 km fjarlægð frá gististaðnum. Eurostars Sitges er í innan við 25 mínútna fjarlægð með lest frá Barcelona-alþjóðaflugvellinum og í innan við 50 mínútna fjarlægð frá miðbæ Barcelona.

Heildareinkunn 8.6 og 8,5 fyrir staðsetningu á booking.com 


185.990 kr.

á mann í tvíbýli

253.990 kr.

á mann í einbýli


Hótel (ekki laust)

Hotel Medium Sitges Park
***

Hotel Galeón í Sitges býður upp á útisundlaug og garðsvæði, ókeypis Wi-Fi Internet hvarvetna og ókeypis te/kaffiþjónustu á jarðhæð.


Stórt morgunverðarhlaðborð inniheldur cava drykk.
Herbergin á Galeón Hotel eru með flatskjásjónvarpi, loftkælingu og koddaúrvali.

Hægt að leigja strandhandklæði og sólhlífar ókeypis gegn vægri tryggingu.


Hótelið er staðsett í göngugötu, um 200 metra frá Sitges-stöðinni, 250 metrum frá ströndinni. Barcelona er í 40 mínútna fjarlægð með lest.


Hótelið fær 8.9 í einkunn á booking.com og 9.6 í einkunn fyrir staðsetningu



157.990 kr.

á mann í tvíbýli

205.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

GSM. 895-9666

Netfang. julia@tripical.com