Til Stokkhólms

17.-20.september & 18.-21.september 2026

Tilboðið miðast við 70 manns og gengi dagsins gildir til 27.01.2026


Er ekki kominn tími til að heilsa upp á sænsku náfrændur okkar og skoða þeirra skemm-tilegu höfuðborg. Slík heimsókn mun koma þér sk emmtilega á óvart. Það er meira í Stokkhólmi en bara kjötbollur og kartöflu-mús!

Fegurð Stokkhólms er að hluta til komin frá því að hún dreifist milli 14 eyja sem eru samtengdar með myndrænum brúm, borgin er oft kölluð Feneyjar norðursins. Svíþjóð er næstum samheiti fyrir nýsköpun og hönnun (þ.e. meira en bara Ikea-vörur) og Svíar er með gott auga fyrir fegurð. 

Að kanna fjölbreytileika hverfanna er einstaklega gaman. Helsta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn er Gamla Stan (gamli bærinn) sem hefur verið hjarta bæjarins frá miðöldum. Svæðið er sívinsælt og lifandi og að sjá hellulögð og mjó strætin, regnbogalituðu húsin og falleg torgin er algjörlega heimsóknarinnar virði.

Verslanir við Designtorget eru stútfullar af verkum eftir nýja hönnuði og selja skemmtilegar og flottar skandinavískar vörur á góðu verði.

Svíar eru matgæðingar og má finna fullt af skemmtilegum matarvögnum og ba karí af gamla skólanum, óhefluð kaffihús en í borginni blómstrar líka nýnorræn matargerð og Michelin-stjörnuveitingastaðir bíða eftir heimsókn. Í Stokkhólm eru einnig skórkostlegar mathallir og markaðir til að ráfa um, og einn sá besti - Saluhall - er í hinu fína Östermalm-hverfi. 

Stokkhólmur er sannkallað augnayndi.


Hvað er hægt að gera í Stokkhólmi

Abba safnið er alveg þess virði að skoða ef ekki þá er Vasasafnið eitthvað sem allir ættu að skoða.

Gamla Stan, gamli miðaldarbærinn sem er einn fallegasti hluti borgarinnar. Fullur af kaffihúsum og verslunum.

Farðu í göngutúr um Stortoget torgið og skoðaðu frægustu rauðu og gulu hús borgarinnar. Hér er einnig safnið tileinkað Nóbelsverðlaunahöfunum.

Dómkirkjan Storkyrkan og þýðir frábær kirkja. Það er elsta musteri Stokkhólms frá 1279. Krýningar, konungleg brúðkaup og svo fr...

Það er skemmtilegt að fara í bátsferð og sigla um eyjarnar, um Feneyjar norðursins!

Drottningholm konungshöllin er ótrúlega falleg og er á alheimsminjaskrá UNESCO


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Bein flug með Icelandair

  • 23kg innritaður farangur
  • 1x handfarangur

Flogið út

Brottför  17.sept  kl. 11:00   frá Keflavík → lending í Stokkhólmi kl. 16:10   

(bein flug, ~3 klst 10 mín)


Brottför  18.sept.  kl. 07:35 frá Keflavík → lending í Stokkhólmi kl. 12:45   

(bein flug, ~3 klst 10 mín)


Flogið heim

Heimferð 20.sept kl. 17:10 frá Stokkhólmi → lending í Keflavík kl. 18:25

(bein flug, ~3 klst 25 mín).

Heimferð 21.sept kl. 17:10 frá Stokkhólmi → lending í Keflavík kl. 18:25

(bein flug, ~3 klst 25 mín).


Gisting

3 nætur á hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli.

Aksturstími ca 30 mín

Fararstjórn

Einn skemmtilegur Tripical fararstjóri fylgir frítt með.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


 Clarion Hotel Stockholm

⭐⭐️⭐⭐


Gestir geta notið góðrar matargerðar og frábærs útsýnis frá þessu hönnunarhóteli, sem er aðeins nokkrum metrum frá Skanstull neðanjarðarlestarstöðinni í tískuhverfinu Södermalm í Stokkhólmi.


Veitingastaðurinn NÒR býður þér upp á eftirminnilega „matargerð allan daginn“ þar sem þú finnur alla klassísku uppáhaldsréttina þína með smá forvitni og kjark. NÒR leggur metnað sinn í að nota staðbundin og norræn hráefni til að búa til rétti sem fanga bragði frá mismunandi árstíðum. Hér geturðu kíkt inn í opið eldhús þar sem réttirnir eru útbúnir, allt á meðan þú horfir út á líflega borgarumhverfið.


Stofan á hótelinu er staðurinn til að slaka á, fá þér mat og drykk og vinna ef þörf krefur.


Elements Spa býður upp á sundlaug og gufubaðsaðstöðu sem og verönd með bar. Hægt er að bóka heilsulindarmeðferðir á staðnum eða í gegnum vefsíðu þeirra. Gestir Clarion fá afslátt af aðgangi að heilsulindinni.


Hægt er að njóta tónlistar- og íþróttaviðburða í Avicci Arena í nágrenninu og áhugaverðir staðir eins og sögulegi gamli bærinn og konunglega kastalinn eru í 5 mínútna neðanjarðarlestarferð í burtu.


Hótelið fær hótelið 8.1 í heildareinkunn og staðsetning fá 9,0 á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

132.990 kr.

á mann í tvíbýli

164.990 kr.

á mann í einbýli


 Hotel C Stockholm

⭐⭐️⭐⭐

Þetta hótel hýsir fræga ísbarinn í Stokkhólmi og er rétt við hliðina á aðallestarstöðinni og Arlanda Express lestinni.


Ísbarinn á Hotel C Stockholm, sem er með -5°C hita, er fyrsti varanlegi ísbarinn í heiminum, þar sem jafnvel glösin eru úr ís. Veitingastaðurinn Swede Hollow býður upp á klassíska sænska rétti með nútímalegu ívafi.


Vinsæla lífræna morgunverðarhlaðborðið inniheldur heimabakað brauð og ferska ávexti. Þau sem vilja slaka á á morgnana geta dekrað við sig með morgunverði í rúmið.


Hin líflega verslunargata Drottninggatan er í innan við 500 metra. Gamli bærinn í Stokkhólmi, Gamla Stan, er aðeins í 10 mínútna göngufjarlægð.


Hótelið fær 8.2 í heildareinkunn og staðstening fær 9,6 á Booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

136.990 kr.

á mann í tvíbýli

167.990 kr.

á mann í einbýli


Elite Hotel Adlon
⭐️⭐⭐

Elite Hotel Adlon er staðsett í stílhreinni byggingu frá 19. öld í hjarta Stokkhólms og býður upp á sérinnréttuð herbergi með ókeypis Wi-Fi. Verslunargatan Drottninggatan er í aðeins 3 mínútna göngufjarlægð.


Daglegt morgunverðarhlaðborð er borið fram. Á sunnudögum geta gestir notið morgunverðar til kl. 11:00.


Gamli bærinn með Konungshöllinni er í 12 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Aðallestarstöðin, með Arlanda Express flugvallarlestinni, er staðsett í 400 metra fjarlægð.


Hótelið fær 8,4 í heildareinkunn og staðsetningin 9,6 á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

137.990 kr.

á mann í tvíbýli

164.990 kr.

á mann í einbýli


Scandic Wallin

⭐⭐️⭐⭐

Scandic Norra Bantorget er staðsett í hjarta Stokkhólms, aðeins 100 metra frá verslunargötunni Drottningatan.


Öll herbergin á Scandic eru innréttuð í hlýjum litum. Þau eru öll með te- og kaffiaðstöðu, öryggishólfi og aðskildum baðherbergjum með sturtu.


Gestir geta borðað á veitingastaðnum á staðnum, sem býður upp á hefðbundinn sænskan mat og alþjóðlega rétti. Á sumrin geta gestir notið máltíða sinna úti á veröndinni. Stórt, lífrænt morgunverðarhlaðborð er borið fram á hverjum morgni.


Almenningsböðin Centralbadet eru staðsett aðeins 200 metra frá. Aðallestarstöð Stokkhólms er í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og býður upp á hraðlestartengingar við Arlanda-flugvöllinn í Stokkhólmi. Hótelið er reyklaust.


Á booking.com fær hótelið 8,4 í heildareinkunn, starfsfólk 9,1 og staðstening fá 9,3


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

137.990 kr.

á mann í tvíbýli

179.990 kr.

á mann í einbýli


Scandic Continental

⭐⭐️⭐⭐

Scandic Continental er staðsett beint á móti aðallestarstöð Stokkhólms og býður upp á þakverönd með bar og stórkostlegu útsýni yfir borgina, ásamt veitingastað á staðnum, The Market.


Veitingastaðurinn Market býður oft upp á lífrænar og staðbundnar afurðir á matseðlinum, sem og grillað alifuglakjöt, kjöt og fisk. Einnig er Café Caldo á staðnum, sem býður upp á gæðakaffi, salöt og samlokur í hádeginu.


Gestir geta haldið sér virkum á Scandic Continental og notið ókeypis aðgangs að líkamsræktarstöð og gufubaði, sem er opið allan sólarhringinn. Einnig er hægt að fá lánaða göngustafi og reiðhjól án endurgjalds.


Áhugaverðir staðir á borð við Ráðhúsið í Stokkhólmi, Kungstragarden-garðurinn og Gamli bærinn eru í um 10 mínútna göngufjarlægð.
Sergels Torg er í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.

Fjölbreytt úrval verslunar er að finna í nágrenninu.


Hótelið fær 8.4 í heildareinkunn og staðstening  9,6. á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

149.990 kr.

á mann í tvíbýli

184.990 kr.

á mann í einbýli


Radisson Collection, Strand Hotel

⭐⭐️⭐⭐

Þetta hótel er staðsett miðsvæðis í Stokkhólmi. Það er tilvalinn staður fyrir þá sem vilja fara í skoðunarferðir um gamla bæinn og Nýlistasafnið, Moderna Museet. Frá hótelinu er töfrandi útsýni yfir sjávarbakka Nybroviken. Ókeypis WiFi er til staðar. Verslanir, veitingastaðir og næturlífið á Stureplan eru í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.


Radisson Collection Strand Hotel Stockholm var upprunalega opnað fyrir Ólympíuleikana árið 1912 en hönnun þess er sígild og herbergin glæsileg. Þau eru búin innréttingum sem eru nútímalegar og sögulegar í senn. Öll herbergin eru með flatskjá, te-/kaffiaðstöðu og glæsilegu baðherbergi.


Hægt er að gæða sér á kokkteilum og máltíðum á sígilda grillhúsinu og barnum, The Strand. Gestir geta tekið á því í líkamsrækt hótelsins.


Þjóðminjasafnið og Kungsträgården-neðanjarðarlestarstöðin eru í 5 mínútna göngufjarlægð. Starfsfólk móttökunnar er alltaf reiðubúið að gefa leiðbeiningar eða gagnlegar ábendingar.


Hótelið fær 8.5 í heildareinkunn og staðstening fær 9,7 á booking.com.

Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

189.990 kr.

á mann í tvíbýli

234.990 kr.

á mann í einbýli


Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. hopar@tripical.com