
Til Aberdeen
23.-25. október 2026
Tilboðið miðast við 180 manns á gengi dagsins og gildir til 26.1.2026
Kannski ertu að hugsa, “af hverju Aberdeen?”. Góð spurning! Við ætlum að svara þeirri spurningu, og ekki nóg með það, þá ætlum við að kynna borgina fyrir þér þanni g að þú getur ekki staðist freistingu að skella þér til Skotlands.
Norðarlega, eins og Ísland, þá er Aberdeen orkuborg. Ofan á það er Aberdeen þekkt undir nafninu Granítborgin en nafnið er viðeigandi að tvennu leiti, svæðið er mikið byggt upp úr silfurgrænu graníti sem sem var grafið í nú yfirgefnu Rubislaw Quarry námunni sem eitt sinn var dýpsta manngerða hola í Evrópu. Hin ástæðan fyrir nafninu er sú að fólkið og hugarfar þess er graníthart!
Á góðum sólardegi má sjá borgina glitra vegna endurkasts granítsins. Aftur á móti á lágskýuðum gráum degi er erfitt að átta sig á því hvar byggingarnar enda og himininn byrjar.
Það sem svæðið hefur með sér, er hrikalega flott og sjónrænt landslag. Hefur Aberdeen verið á mikilli uppsiglingu undanfarin ár og er nú orðin að ansi mikilvæg skoska landanum, drifinn af olíuiðnaði í Norðursjónum. Olíupeningurinn hefur gert fær borgina nær London og Edinborg. Er hún í dag því orðin meiri “lúxusborg” en hún var hér áður fyrr. Hótel, veitingastaðir og klúbbar sem sprottið upp eins og gorkúlur og því virkilega mikið að sjá, skoða og gera. Það er ekki nóg að geyma bara flott klúbba og bari, heldur geymir borgin mikið úrval af menningarlegri hlutum, t.d. lista- og sögu söfnum, og meira að segja stórt moll þar sem hægt er að versla eins og brjálæðingur (mjög kúltúral!).
Hvað er hægt að gera í Aberteen
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
Leonardo Hotel Aberdeen
****
Leonardo Hotel Aberdeen er staðsett við hliðina á bæði Union Square-verslunarmiðstöðinni og Aberdeen-lestarstöðinni, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá verslunum, börum og veitingastöðum Union Street. Sólarhringsmóttaka er til staðar og öll herbergin eru með loftkælingu.
Draumarúm, flatskjásjónvarp og hárþurrka eru í hverju rúmgóðu herbergi. Öll herbergin á Leonardo Hotel Aberdeen eru með sérbaðherbergi með kraftsturtu og úrvali af snyrtivörum.
Bar og grill á Leonardo's býður upp á veitingar allan daginn með víðtækum grillhluta ásamt hamborgurum, pizzum, salötum, samlokum. Leonardo Hotel Aberdeen býður upp á illy kaffi.
Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
122.990 kr.
á mann í tvíbýli
142.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
Sandman Signature Aberdeen Hotel & Spa
****
Sandman Signature Aberdeen Hotel & Spa er glæsilegt hótel í hjarta Aberdeen, staðsett í sögulegri byggingu rétt við Aberdeen Art Gallery og stutt frá verslunum, veitingastöðum og menningarviðburðum borgarinnar.
Hótelið býður upp á nútímalegan og stílhreinan aðbúnað, vinsælan veitingastaðinn Chop Grill & Bar, líkamsræktaraðstöðu og afslappandi Signature Spa með fjölbreyttu úrvali meðferða.
Með frábærri staðsetningu, einstaklega þægilegu umhverfi og vinalegri þjónustu er þetta kjörinn staður fyrir hópa.
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
129.990 kr.
á mann í tvíbýli
159.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
ibis Aberdeen Centre -Quayside
***
ibis Aberdeen Centre – Quayside er frábært hótel í hjarta Aberdeen, staðsett á Shiprow, rétt við Aberdeen Maritime Museum og aðeins fimm mínútna göngufjarlægð frá lestar- og strætóstöðvum.
Hótelið býður upp á nútímaleg, snyrtileg herbergi með , flatskjá, te/kaffiaðstöðu og hraðvirku ókeypis Wi‑Fi. Á staðnum er 24 tíma bar og veitingastaður með góðu úrvali í morgunverði. Hótelið er einstaklega snyrtilegt, með frábærri staðsetningu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com
116.990 kr.
á mann í tvíbýli
129.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

















