Til Varsjá
23. - 26. apríl 2026
Tilboðið miðast við 30 manns á gengi dagsins og gildir til 19.12.2025
Varsjá er ansi merkileg borg. Merkileg að því leytinu til að hún hefur yfir sér sama jákvæða sjarma og margar skemmtilegar miðaldaborgir Evrópu. Og ódýr eru hún!
Varsjá er höfuðborg Póllands. Borgin hefur tekið stakkaskiptum á síðustu áratugum en þó eimir enn töluvert af sovéskum áhrifum. Heillandi er hún samt. Nema hvað Varsjá var lögð í rúst í Seinni heimsstyrjöldinni. Rúst með stóru erri því níu af hverjum tíu byggingum í borginni þá voru jafnaðar við jörðu. Engin önnur borg fékk sömu útreið, ekki einu sinni Dresden í Þýskalandi, og það stórkostlega er að sá sem heimsækir Varsjá í dag verður þess ekkert var.
Sé eitthvað kannski sem sker sérstaklega í augu gesta er það mögulega að kapítalismi hefur greinilega flætt yfir borgina á miklum hraða. Þannig er borgarskipulagið á köflum eins og út úr kú með nýtísku glerbyggingar við hlið aldinna halla í barrokkstíl og borgin tekur enn miklum breytingum. Sú Varsjá sem heimsótt var fyrir tíu árum er vart þekkjanleg og líkur á að eftir tíu ár verði Varsjá nútímans vart kunnugleg heldur.
Hvað er hægt að gera í Varsjá
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Radisson Blu Sobieski
****
Radisson Blu Sobieski er lúxus, reyklaust hótel í miðbæ Varsjár. Það býður upp á glæsileg herbergi, framúrskarandi matargerð og afþreyingu. Ókeypis Wi-Fi er í boði. Gististaðurinn er með greiðan neðanjarðarlestaraðgang.
Hótelið býður upp á vel loftkæld herbergi með hljóðeinangrun, LCD gervihnattasjónvarpi og minibar. Sérbaðherbergið er með sturtu eða baðkari.
Á hótelinu eru 2 frábærir veitingastaðir, Marysieńka og Trylogia, sem framreiða dýrindis pólska og alþjóðlega rétti. Hótelið er þekkt fyrir "ofur" morgunverðarhlaðborðið sitt sem býður upp á úrval af brauði, ávöxtum, áleggi og heitum réttum, þar á meðal ofnæmis vænum valkostum.
Radisson Blu Sobieski Hotelið býður gestum sínum upp á algerlega nýja vellíðunarupplifun í uppfærðri og fullkomlega endurnýjuðri heilsulind og líkamsræktarstöð með svæði fyrir þolþjálfun og þyngdarþjálfun, auk einkaþjálfunar og heilsulindarmeðferða sé þess óskað.
Warszawa Centralna-lestarstöðin er staðsett í 10 mí göngufæri og gamli bærinn í 20 mín göngufæri.
Hótelið fær heildareinkunn
8,7 og
9,1 fyrir staðsetningu á booking.com
Aksturstími frá flugvelli ca 60mín - 43km
Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
148.990 kr.
á mann í tvíbýli
169.990 kr.
á mann í einbýli
Novotel Warszawa Centrum
****
Hið nútímalega Novotel Warszawa Centrum er með víðáttumikið útsýni yfir Varsjá borg. Það er staðsett í miðbæ Varsjá í 5 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarstöðinni. Hótelið býður upp á fjölbreyttan morgunverð. Boðið er upp á Wi-Fi-Internet hvarvetna á þessu 4-stjörnu hóteli. Öll svæði hótelsins eru reyklaus.
Veitingastaðurinn og barinn á Novotel, NOVO2, býður upp á alþjóðlega rétti og mikið úrval drykkja. Hótelið býður einnig upp á spa með gufubaði og miklu úrvali af líkamsræktarbúnaði. Aðstaðan er staðsett á efstu hæðinni en þaðan er fallegt, víðáttumikið útsýni yfir pólsku höfðuborgina.
Novotel Centrum er staðsett gegnt Menningar- og vísindahöllinni í Varsjá. Gestir geta nýtt sér góðar tengingar með almenningssamgöngum en Centrum-neðanjarðarlestarstöðin og margar stoppistöðvar fyrir strætisvagna og sporvagna eru í göngufæri. Sem og fjöldinn allur af klúbbum og vetingastöðum
Hótelið fær heildareinkunn
8,9 og
9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Aksturstími frá flugvelli ca 55mín - 40km
Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
149.990 kr.
á mann í tvíbýli
179.990 kr.
á mann í einbýli
Radisson Collection Hotel, Warsaw
*****
Radisson Collection Hotel, Warsaw er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarrstöðinni í Varsjá og býður upp á sundlaug. Loftkæld herbergi með te-/kaffiaðstöðu eru í boði. Ókeypis WiFi er til staðar.
Herberginn á Radisson Collection eru rúmgóð og nútímaleg, eru með minibar, öryggishólfi og stóru skrifborði. Stórt og flott baðherbergi í þeim öllum herbergjum.
Radisson Collection Hotel, Warsaw hýsir TAGO Restaurant þar sem morgunverðarhlaðborð er borið fram og THE SPOT Restaurant and Bar. Veitingastaðurinn er opinn allt árið um kring og býður upp á nútímalega matargerð og glæsilega kokkteila. Á sumrin geta gestir snætt og slappað af á útiveröndinni.
Hótelið er staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Złote Tarasy-verslunarmiðstöðinni og Menningar- og vísindahöllinni. Chopin-flugvöllurinn í Varsjá er í einungis 20 mínútna akstursfæri.
Hótelið fær heildareinkunn
8,9 og
9,3 fyrir staðsetningu á booking.com
Aksturstími frá flugvelli ca 50mín - 39km
Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
175.990 kr.
á mann í tvíbýli
233.990 kr.
á mann í einbýli
Staðfestingagjald greiðist strax eftir að tilboð er samþykkt. (Verð Wizz Air sveiflast daglega og þau bjóða ekki upp á fast verð.)
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!


















