
Til Algarve
1.-4.maí 2026
Tilboðið miðast við 35 manns og á gengi dagsins - gildir til 17.11.2025
Algarve er eins og postkort sem lifnar við – endalausar sandstrendur, gullin björg, blágrænar víkur og hvít þorp með appelsínugulum þökum sem glitra í sólinni.
Hér sameinast portúgalskur sjarminn, hlýtt loftslag og afslappað andrúmsloft þar sem lífið er tekið með brosi.
Hvort sem þig dreymir um rólega daga á ströndinni, golf í sólinni, gönguferðir meðfram klettum eða kvöldverð með sjávarréttum og víni við sjóinn, þá fær Algarve hjartað til að slá örlítið hraðar.
Frá glæsilegum strandhótelum og heitum sandi í Albufeira og Vilamoura – til sögulegra borga eins og Lagos og Tavira – er þetta svæði eins og lítið ævintýraland suðursins. Og þegar dagurinn kveður? Þá tekur við töfrandi sólsetur, lifandi tónlist og hamingjuhlátur á torgunum.
Á kvöldin tekur svo við líflegt andrúmsloft með veitingastöðum, börum og sólsetrum sem gleymast seint.
Hvað er hægt að gera í Algarve
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
EPIC SANA Algarve Hotel
*****
EPIC SANA Algarve Hotel er staðsett á milli Vilamoura og Albufeira og með útsýni yfir Falésia-ströndina. Hótelið er með beinan aðgang að strönd, heilsulind, innisundlaug, fimm útisundlaugar og fimm veitingastaði.
Hótelið er með ráðstefnu- og viðburðaaðstöðu, sem hentar fullkomlega fyrir fyrirtækjahópa, hvataferðir eða gala-kvöld. Stórir garðar, verönd og útisvæði skapa draumakenndan ramma fyrir kvöldverði undir stjörnunum.
Hótelið er staðsett við Praia da Falésia, aðeins um 8 km frá Albufeira – fullkomin blanda af ró, gæðum og nálægð við vinnsælustu svæði Algarve.
Heildareinkunn
9,0 og
9,3 fyrir staðsetningu á booking.com
Aksturstími frá flugvelli ca 40mín - 35 km
177.990 kr.
á mann í tvíbýli
279.990 kr.
á mann í einbýli
Algarve Marriott Salgados
Golf Resort & Spa
*****
Algarve Marriott Salgados Golf Resort & Spa er við hliðina á Salgados Golfvellinum. Hótelið er með fallegt sjávarútsýni, 3 útisundlaugar, SPA & Wellness Center ásamt 4 veitingastöðum og börum.
Útisundlaugarnar eru með sólbekkjum og verönd þar sem gestir geta slakað á í rólegheitum eftir sund. Heilsulindin býður upp á upphitaða innisundlaug, tyrkneskt bað og gufubað. Nudd eru einnig í boði gegn aukagjaldi. Salgados-ströndin er í 700 metra göngufjarlægð. Gamli bærinn í Albufeira er í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið staðsett í rólegu hverfi við náttúru, golfvöll og strönd, en samt mjög stutt frá sjarmerandi gamla bænum í Albufeira fyrir þá sem vilja kvöldlíf eða verslun
Heildareinkunn
8.3 og
8,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Aksturstími frá flugvelli ca 45mín / 49km
179.990 kr.
á mann í tvíbýli
229.990 kr.
á mann í einbýli
NAU Morgado Golf & Country Club
****
NAU Morgado Golf & Country Club er umvafinn glæsilegum golfvöllum og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Monchique-fjallið. Þetta fjögurra stjörnu hótel státar af fjórum útisundlaugum, veitingastað og morgunverðarhlaðborði sem innifalið er í dvölinni. Ókeypis þráðlaust net er í boði á öllu hótelinu.
Öll herbergin eru með flatskjá með kapalrásum, sérbaðherbergi og víðáttumiklu útsýni yfir náttúruna í kring.
Gestir geta notið fjölbreyttra rétta úr bæði heimamatseld og alþjóðlegri matargerð á hlaðborðsveitingastað hótelsins. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er framreitt á hverjum morgni.
Hótelið er staðsett við tvo 18 holu golfvelli og er tilvalið fyrir áhugafólk um golf. Á Golfakademíunni og í klúbbhúsinu er hægt að leigja golfbúnað og fá bæði einkakennslu og hópkennslu í golfi.
Á svæðinu eru tvær útisundlaugar með sólpalli og tvær grunnar barnalaugar. Sólbekkir eru við hverja laug og skapa notalegt umhverfi til afslöppunar.
Aksturstími frá flugvelli ca 50 mín - 71 km
Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 8,1 fyrir staðsetningu á booking.com
149.990 kr.
á mann í tvíbýli
169.990 kr.
á mann í einbýli
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

















