Til Sitges


5.-10.febrúar 2026


Tilboðið miðast við 16 manns á gengi dagsins og gildir til 27.10.2025


Fjölbreytileikanum fagnað í suðrænni paradís!
35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin sólríka og sykursæta Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheita næturlífi og frábæru festivölum. Yndislegur staður!

Fjölbreytileikanum er fagnað í þessum dásemdar smábæ með dansi og tónlist hvenær sem færi gefst. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur, hvers kyns eða kynhneigðar sem það er. Hér eru allir vinir, og öllum áhyggjum og óþarfa leiðindum er góðfúslega vísað frá. Litlir götustígar skera bæjarkjarnann þvers og kruss. Alls staðar eru litlar verslanir, skemmtilegir veitingastaðir og krár, þar sem auðvelt er að finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem lagst er í gott sólbað á einni af þeim 13 ströndum sem tilheyra svæðinu.

Sitges er stundum nefnd Festivalabærinn. Árið um kring standa yfir hátíðir af ýmsu tagi. Þekktust er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming yfirtaka bæinn. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt öðrum minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun


Hvað er hægt að gera í Sitges

Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði

Fjöldi dásamlegra stranda til að njóta góða veðursins og kannski frískandi drykk

Barcelona er skammt undan og auðvelt að taka sér dagsferð þangað með lest.

Hin fallega Bartomeu kirkja frá 17. öld stendur við ströndina rétt neðan við bæjarkjarnann

Vinsælur hjólreiðatúrar til vínbænda sem hróðugir bjóða upp á smakk af framleiðslu sinni

Hér er svo gott að liggja í leti og slaka á, tana og njóta, borða, drekka, versla, elska!


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair 

  • 20 kg taska
  • 1x handfarangur

Flogið út

Brottför kl. 08:00   frá Keflavík → lending í Barcelona kl. 13:00   

(bein flug, ~4klst 15 mín)

Flogið heim

Heimferð: kl. 11:50 frá Barcelona → lending í Keflavík kl. 15:30

(bein flug, ~4 klst 40 mín).

Gisting

4 nætur á hóteli í miðborg Sitges. Innifalið er morgunverður, wi-fi og citytax.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli, aksturstími ca 40 mín

Fararstjórn

Einn skemmtilegur Tripical fararstjóri.

Hægt að bóka gegn gjaldi.

kr. 285.900 á hópinn


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Hotel Calipolis

⭐️⭐️⭐️⭐️

Calipolis er staðsett miðsvæðis í Sitges og við ströndina. Það býður upp á sólarhringsmóttöku, útisundlaug, líkamsræktarstöð, herbergi sem eru með loftkælingu og ókeypis WiFi.

Herbergin á Calipolis eru glæsileg og þau státa af flatskjá og sérbaðherbergi með hárþurrku. 

Boðið er upp á ókeypis afnot af sundlaugarhandklæðum.

Veitingastaður hótelsins, Infinity Restaurant, býður upp á Miðjarðarhafsrétti við hliðina á sundlauginni. 

Það er einnig bar til staðar og sumarverönd með útsýni yfir sjóinn og göngusvæðið.

Hægt er að leigja hjól í móttökunni.


Heildareinkunn 8.6 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com 

.

159.990 kr.

á mann í tvíbýli

199.990 kr.

á mann í einbýli


Sabatic Sitges Hotel

⭐️⭐️⭐️⭐️

Sabàtic Sitges Hotel, Autograph Collection býður upp á ókeypis reiðhjól, árstíðabundna útisundlaug, heilsuræktarstöð og garð í Sitges. Gestir geta notið Miðjarðarhafsrétta á veitingastaðnum eða fengið sér kokkteil á barnum.


Öll herbergin á hótelinu eru með svalir. Sumar einingar á Sabàtic Sitges Hotel, Autograph Collection eru með sjávarútsýni og öll herbergin eru með kaffivél.


Hægt er að spila biljarð á hótelinu og vinsælt er að fara í gönguferðir og veiða á svæðinu.


Áhugaverðir staðir í nágrenni Sabàtic Sitges Hotel, Autograph Collection eru L'Estanyol-ströndin, Ribera-ströndin og Bassa Rodona-ströndin. Barcelona El Prat-flugvöllurinn er í 27 km fjarlægð.


Heildareinkunn 8.9 og 8,4  fyrir staðsetningu á booking.com 

.

189.990 kr.

á mann í tvíbýli

249.990 kr.

á mann í einbýli


ME Sitges Terramar

⭐️⭐️⭐️⭐️

Þetta hótel við ströndina er staðsett á rólegu svæði í Sitges, við hliðina á Terramar-görðunum. Það býður upp á einkastrandklúbb, útisundlaug með sólstofu og loftkæld herbergi með sérsvölum.


Herbergin á ME Sitges Terramar eru með flatskjásjónvarpi, ókeypis WiFi og Nespresso-kaffivél. Öll eru með sérbaðherbergi með regnsturtu, baðsloppum, inniskóm, ókeypis snyrtivörum frá CO Bigelow og hárþurrku.


Fjölbreyttur matur er í boði, eins og Beso Sitges sem býður upp á baskneska-miðjarðarhafsmatargerð og útiverönd, eða Pool Bites sem býður upp á hollan mat og er með verönd með sjávarútsýni. Hótelið býður einnig upp á tvo bari, Radio Rooftop Bar sem býður upp á útsýni yfir borgina og Beso Beach sem er staðsett á ströndinni.


Aðrar aðstöður eru meðal annars líkamsræktarstöð og vellíðunaraðstaða.


Rútur til miðbæjar Sitges stoppa nokkrum metrum frá Terramar. Hægt er að komast í miðbæ Barcelona á 40 mínútum með bíl eða lest. Barcelona-flugvöllurinn er í 24 km fjarlægð. Einkabílastæði eru í boði á staðnum gegn gjaldi.


Heildareinkunn 8.6 og 8,9  fyrir staðsetningu á booking.com 

.

199.990 kr.

á mann í tvíbýli

267.990 kr.

á mann í einbýli


Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. Hopar@tripical.com