Til Róm

25.febrúar - 1.mars 2026

Tilboðið miðast við 16 manns og gengi dagsins gildir til 27.10.2026


Róm eða borgin eilífa er eitt riasvaxið listasafn full af menningu, tísku, gómsætum mat og sögufrægu stöðum og byggingum. Hún var alla vega ekki byggð á einum degi.

Ítalía er draumastaður í hugum margra. Landið býr yfir magnaðri sögu og menningu, þar eru víða stórbrotnar byggingar, náttúrufegurðin er einstök, og svo auðvitað það mikilvægasta: Maturinn! Ofan á alla þessa kosti bætist dásamlegt veðurfar, og þjóðin sem þarna býr. Það er bara eitthvað við Ítali, sem erfitt er að útskýra. Þeir eru bara svo töff! 

Róm er svo ótrúleg, gamla borgin, borg miðaldarinnar, endurreisnartímans. Glæsileg torg, kirkjur, þröng sund, Pantheon, Navona og Gyðingahverfið, magnað.

 

Miðborg Rómar skiptist í níu hverfi en það er nánast eingöngu miðborgin sem er dvalarstaður 99 prósenta þeirra sem þangað koma til heimsóknar. Eru enda úthverfi borgarinnar töluvert nýlegri en gamla miðborgin og engin sérstök saga eða minjar þar sem heilla ferðamenn mikið nema hræbillegar mafíublokkir þyki spennandi sýn.

En borgin er stútfull af frábærum veitingastöðum, börum, búðum og skemmtistöðum. Það leiðist alla vega engum í Róm!



 Hvað er hægt að gera í Róm

Kíktu á Hringleikhúsið, Spænsku tröppurnar, Pantheon, Trevi gosbrunninn og og og ...

Taktu Metro það er fljótlegasta farartækið til að komast á milli staða

Via Condotti verslunargatan fyrir þá sem vilja versla hátísku og Monti fyrir ... okkur hin

Pizzeria, Trattoria, Osteria út um allt og margir staðir hafa verið með sama matseðilinn í 25 ár, Ítalir klikka ekki á matnum. Svo er hægt að fara í matarferð með leiðsögn. Buon appetito!

Vatíkanið er land inni í borginni, hvergi annarsstaðar hægt að sjá svoleiðis

Farðu í dagsferð til Napolí, Pompeii eða til Amalfi Coast


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair

  • 23 kg innritaður farangur
  • Ein handtaska


Flogið út

Brottför kl. 08:20   frá Keflavík → lending í Róm kl. 14:00   

(bein flug, ~4klst 40 mín)

Flogið heim

Heimferð: kl. 11:25 frá Róm → lending í Keflavík kl. 15:30

(bein flug, ~5 klst 05 mín).

Gisting

4 nætur á hóteli í Róm

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Róm

ca. 30 mín akstur

Fararstjórn

Einn skemmtilegur Tripical fararstjóri.

Hægt að bóka gegn gjaldi.

kr. 285.900 á hópinn


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


UNA Hotels Empire Roma

⭐️⭐️⭐️⭐️

UNA Hotels Empire Roma er fáguð bygging í feneyskum stíl í hjarta Rómar, í 5 mínútna göngufjarlægð frá hinu glæsilega Via Veneto.


Glæsileg bygging UNA Hotels Empire Roma var áður rómverskt heimili göfugrar feneyskrar fjölskyldu. Það varðveitir enn dæmigerða byggingareinkenni.


Þrátt fyrir sögulegt útlit býður UNA Hotels Empire Roma upp á nútímaleg, hagnýt herbergi í klassískum stíl, með Wi-Fi internettengingu. Öll herbergin eru með kirsuberjaviðarhúsgögnum og teppalögðum gólfum og eru einnig með lessvæði.


Corte di Aureliano Bar & Restaurant eftir „UNA cucina“ er opinn almenningi og býður upp á staðbundna og alþjóðlega rétti.


Repubblica-neðanjarðarlestarstöðin (lína A) er í aðeins 500 metra fjarlægð frá UNA Hotels Empire Roma.


Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

154.990 kr.

á mann í tvíbýli

217.990 kr.

á mann í einbýli


Best Western Premier Hotel Royal Santina

⭐️⭐️⭐️⭐️

Hotel Royal Santina er staðsett í 200 metra fjarlægð frá Termini-lestarstöðinni í Róm. Verslunargatan Via Nazionale er í 550 metra fjarlægð.


Í morgunmatnum er hægt að njóta fjölbreytts hlaðborðs. Veitingastaðurinn á staðnum býður upp á fjölbreyttan mat með grænmetis- og glútenlausum valkostum.


Baðhúsin Terme di Diocleziano eru í 250 metra fjarlægð frá gististaðnum og Coliseum er í 2 neðanjarðarlestarstöðvum frá.


Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og  fyrir staðsetningu 9,3 á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

157.990 kr.

á mann í tvíbýli

218.990 kr.

á mann í einbýli


Radisson Blu GHR Rome

⭐️⭐️⭐️⭐️

Radisson Blu GHR Rome býður upp á ókeypis WiFi, ókeypis líkamsræktarstöð og ókeypis skutluþjónustu til/frá Spænsku tröppunum, veitingastað og 2 bari. Tónlistarstaðurinn Auditorium Parco della Musica er í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu.


Herbergin og svíturnar á Radisson Blu GHR Rome eru loftkæld, öll með LED-sjónvarpi, minibar og hárþurrku. Sérbaðherbergið er með snyrtivörum.


Morgunverðarhlaðborð er borið fram daglega.


Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 8,0 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

169.990 kr.

á mann í tvíbýli

227.990 kr.

á mann í einbýli


UNA Hotels Decò Roma

⭐️⭐️⭐️⭐️

UNA Hotels Decò Roma er staðsett aðeins 100 metrum frá Termini-lestarstöðinni og býður upp á nútímalega hönnun og bjartar innréttingar, auk einkabílastæðahúss og loftkæld herbergi með viðargólfi.


Öll herbergin á þessu UNA hóteli eru með hágæða rúmföt og glæsilegt baðherbergi. Þau eru öll með flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum og Wi-Fi aðgangi.


Gestir geta byrjað daginn á stóru morgunverðarhlaðborði og notið drykkja á glæsilega vínbarnum.


UNA Hotels Decò Roma er með frábærar almenningssamgöngutengingar um borgina með rútu, neðanjarðarlest og sporvagni. Það er 2 neðanjarðarlestarstöðvum frá bæði Coliseum og Trevi-gosbrunninum.


Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og  fyrir staðsetningu 9,1 á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

159.990 kr.

á mann í tvíbýli

219.990 kr.

á mann í einbýli


Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði, finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. hopar@tripical.com