Til Nice


8.-12. október 2026


Tilboðið miðast við 100 manns á gengi dagsins og gildir til 29.10.2025


Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!

Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram

risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château (þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og ​​við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.


Hvað er hægt að gera í Nice

Einn frægasti listamaður Frakka, Henri Mattisse, bjó í Nice til fjölda ára og þar er safn með öllum hans helstu verkum

Ertu í stuði til að gambla svolítið? Casino Barrière Le Ruhl er glæsilegur staður fyrir þess háttar

Á Cours Saleya er vinsæll götu-markaður (fyrst opnaður 1861) og dásamleg kaffihúsaverönd

Hôtel Negresco er rúmlega 100 ára glamúrbygging við Promenade des Anglais, og dýrindis kokteilar á barnum

Strætókerfi svæðisins er mjög þægilegt og kvikmyndahátíðabærinn Cannes er skammt undan. Kíktu!

Le Shapko er geggjaður djassbar með lifandi tónlist og góðum stemmara öll kvöld vikunnar


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með áætlunarflugi Icelandair

  • 20 kg. innritaður farangur
  • 1 x handfarangur

Flogið út

Flogið út frá KEF kl. 8:20
Lent í 
Nice klukkan 14:40 að staðartíma.

Flogið heim

Flogið heim frá Nice kl. 15:40
Lent í 
KEF klukkan 18:00 að staðartíma.

Gisting

4 nætur á hóteli í Nice
Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli.
Aksturstími ca 15 mín

Fararstjórn

Einn skemmtilegur  Tripical fararstjóri.

Hægt að bóka gegn gjaldi.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



AC Hotel Nice

****

AC Hotel by Marriott Nice býður upp á fallega þakverönd með stórbrotnu útsýni yfir borgina, allt frá gamla bænum til flugvallarins. Hótelið er staðsett í aðeins nokkurra skrefa fjarlægð frá Promenade des Anglais og um 1,6 km frá gamla bænum í Nice.  Ókeypis WiFi er í boði um allt hótelið. Athugið að sundlaugin er árstíðabundin og opnar venjulega frá 15. maí til byrjun október, háð veðri.

Herbergin og svíturnar eru loftkæld og búin minibar og flatskjá með gervihnattasjónvarpi. Á baðherbergjum er baðkar eða sturta, hárblásari og ókeypis snyrtivörur.

Gestir geta einnig slakað á í Zen-garði hótelsins sem er opinn allan sólarhringinngindum.


Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 9,0 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

183.990 kr.

á mann í tvíbýli

244.990 kr.

á mann í einbýli


Crowne Plaza Nice - Grand Arenas

****

Hótelið býður upp á þægileg og nútímaleg herbergi með loftkælingu, sérbaðherbergi, borgar- eða sjávarsýn og öllum helstu þægindum eins og ókeypis WiFi, minibar og flatskjá. Á veitingastaðnum er boðið upp á alþjóðlega rétti með grænmetisvænum valkostum, þar sem gestir geta notið brunch, hádegis- og kvöldverðar í bæði hefðbundnu og nútímalegu umhverfi. Aðstaðan er frábær – gufubað, sólverönd, líkamsræktarsalur og útisvæði til afslöppunar, auk setustofu, kaffihúss og hjólageymslu. Staðsetningin er einstaklega þægileg, aðeins um 1.000 metra frá Nice Côte d’Azur flugvelli og í nálægð við Plage Cousteau (2 km) og Allianz Riviera leikvanginn (5 km).


Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 9,0 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

169.990 kr.

á mann í tvíbýli

215.990 kr.

á mann í einbýli


Holiday In Nice - Port St Laurent by IHG

****

Holiday Inn Nice – Port St Laurent er glæsilegt 4 stjörnu hótel við Miðjarðarhafið, aðeins 5 mínútna akstur frá Nice Côte d’Azur flugvellinum og í göngufæri frá einni stærstu verslunarmiðstöð Evrópu. Hótelið er staðsett beint við ströndina og býður upp á afslappaða Miðjarðarhafsstemningu með nútímalegum þægindum.

Herbergin eru með loftkælingu, sérbaðherbergi, svölum og nútímalegum þægindum.


Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 8,8 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

162.990 kr.

á mann í tvíbýli

219.990 kr.

á mann í einbýli


Hotel Aston La Scala

****

Hotel Aston La Scala er staðsett í hjarta Nice með útsýni yfir Promenade du Paillon. Hótelið státar af glæsilegum þaksvölum með útisundlaug, bar og stórbrotnu útsýni yfir borgina og Miðjarðarhafið. Aðeins 5 mínútna göngufjarlægð er að Promenade des Anglais, ströndinni og gamla bænum, og Place Massena er í 200 metra fjarlægð.


Hótelið fær heildareinkunina 7,6 og 9,7 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

189.990 kr.

á mann í tvíbýli

259.990 kr.

á mann í einbýli


Radisson Blu Hotel Nice

****

Hótelið er staðsett á Promenade des Anglais og býður upp á einkaströnd og þaksvalir með sundlaug og stórbrotnu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Ókeypis Wi-Fi er í boði um allt hótelið, þar með talið á ströndinni.

Herbergin eru glæsilega innréttuð með loftkælingu, flatskjá og ókeypis Wi-Fi. Sum herbergi hafa stórar svalir með sjávarútsýni og Nespresso kaffivél.


Hótelið fær heildareinkunina 7,7 og 8,5 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

198.990 kr.

á mann í tvíbýli

269.990 kr.

á mann í einbýli


NH Nice (ekki laust)

****

Hótelið NH Nice er staðsett í 10 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum í Nice og höfninni, en það er með þaksundlaug sem er opin hluta ársins, gufubað og verönd. Það býður upp á ókeypis WiFi og er við hliðina á Nice Acropolis.


Herbergin á NH Nice eru í nútímalegum stíl og státa af flatskjá ásamt minibar. Öll eru með loftkælingu og sérbaðherbergi. Öll herbergin eru aðgengileg með lyftu.


Morgunverður er í boði á hverjum morgni á veitingastaðnum L'Oliveraie og á sumrin býður NH Nice 360° þakveitingastaðurinn upp á Miðjarðarhafsmatargerð í hádeginu og á kvöldin. Hótelbarinn býður upp á kokkteila sem drekka má á veröndinni í góðu veðri á sumrin, en þaðan er útsýni yfir húsþök Nice.


Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 8,1 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

187.990 kr.

á mann í tvíbýli

259.990 kr.

á mann í einbýli


Mercure Villeneuve Loubet Plage (ekki laust)

****

Mercure Villeneuve Loubet Plage 4* er við ströndina, með nútímalegum herbergjum, loftkælingu og ókeypis Wi-Fi. Notaleg sundlaug og sólstólar, bar/veitingaþjónusta og stutt í höfnina, veitingastaði og strandgöngur – frábær kostur fyrir afslappað frí á Rivíerunni. Stílhreint strandhótel milli Nice og Antibes!


Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 9,2 fyrir staðsetningu. 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

192.990 kr.

á mann í tvíbýli

254.990 kr.

á mann í einbýli


Dagsferð til Monakó – glæsileiki og saga við Miðjarðarhafið



rá Nice er stutt og einstaklega falleg ferð til furstadæmisins Mónakó, þar sem lúxus og saga mætast. Hópurinn nýtur ferðalagsins meðfram glitrandi Miðjarðarhafsströndinni og fær tækifæri til að skoða furstahöllina og glæsilega höfnina þar sem snekkjur og stórborgarstemning skapa einstaka upplifun. Þetta er spennandi dagsferð sem sameinar menningu, glæsileika og afslöppun – fullkomin fyrir hóp sem vill upplifa eitthvað stórkostlegt.

Viðburðarstjóri Tripical mun sjá um að setja saman heillandi dagskrá sem gerir ferðina ógleymanlega.


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. hopar@tripical.com