
Til Feneyja
9 - 13 október 2026
Tilboðið miðast við 100 manns á gengi dagsins og gildir til 29.10.2025
Það hefur ávallt fylgt Feneyjum viss glæsileiki, elegans og smekkleg-heit. Töfrandi staður með glæsta sögu sem nær allt til tíma Rómarveldisins.
Feneyjar er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Borgin hefur allt frá tímum Rómverja verið vinsæll dvalarstaður ríkra auðmanna. Á endurreisnartímanum risu þar miklar glæsi-byggingar sem sumar hverjar standa enn og eru opnar almenningi til að skoða, dást að og njóta. Í borginni eru götur sem allar eiga sína sögu og sjarma, þar má finna veitingarstaði og sjoppur sem sveipa umhverfið ævintýralegum blæ. Að sigla um feni borgarinnar er sjónarspil út af fyrir sig.
Glæsihúsin eru mörg, en til dæmis hægt að mæla með heimsókn í Doge´s Palace sem er einstök bygging frá 13.öld sem nú hýsir safn af sígildum og sögufrægum listaverkum. Þá eru stórkostlegar kirkjur ófáar í borginni, sem dæmi má nefna hina mögnuðu Saint Mark's Basilica kirkju. Svo má líka gleyma sér í verslunarferðum eða taka góða slökun á kaffihúsum borgarinnar. Feneyjar dekstrar þig á þann hátt sem þú hefur ekki upplifað áður.
Hvað er hægt að gera í Feneyjum
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Leonardo Royal Hotel Venice Mestre
****
Leonardo Royal Hotel Venice Mestre býður nútímaleg, rúmgóð herbergi, veitingastað og bar, morgunverðarhlaðborð og líkamsrækt. Metró- og lestarstöðin Mestre er í göngufæri. Stílhreint og miðsvæðis með frábærum tengingum!
Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og
9,1 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
154.990 kr.
á mann í tvíbýli
219.990 kr.
á mann í einbýli
Novotel Venezia Mestre Castellana
****
Novotel Venezia Mestre Castellana er þægilegt 4* hótel í Mestre með rúmgóðum, loftkældum herbergjum, góðu morgunverðarhlaðborði og veitingastað. Stutt ganga í strætó til Feneyja. Útisundlaug (árstíðabundin) og vinalegt starfsfólk – fullkomið fyrir bæði helgarferð til Feneyja.
Hótelið fær heildareinkunina 8,2 og
7,9 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
159.990 kr.
á mann í tvíbýli
224.990 kr.
á mann í einbýli
NH Collection Murano Villa
****
NH Collection Murano Villa býður falleg herbergi, spa og verönd með útsýni yfir lónið. Einkabryggja og auðvelt aðgengi með vaporetto til Feneyja – róleg eyjastemning en samt skref frá miðbæjarlífinu. Stílhreint hótel í endurgerðri glerverksmiðju á Murano!
Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og
9,2 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
189.990 kr.
á mann í tvíbýli
299.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

















