Til Riga


23. - 26. apríl 2026


Tilboðið miðast við 70 manns á gengi dagsins og gildir til 15.10.2025


Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi. 

Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinumýymsu snyrtistofum borgarinnar. 

Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.


 Hvað er hægt að gera í Riga

Art Nouveau safnið er ansi magnað

Slaka á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstök


Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Þú ert umkringdur gömlum byggingum sem gaman er að skoða.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Air Baltic

  • 20 kg innritaður farangur
  • 1 x handtaska


Flogið út

Brottför kl. 00:30 frá Keflavík → lending í Riga kl. 07:05 +1   

(bein flug, ~3 klst 35 mín)

Flogið heim

Heimferð: kl. 22:45 frá Riga →
lending í Keflavík kl. 23:40

(bein flug, ~4 klst 15 mín).

Gisting

4 nætur (snemm-innritun) á hóteli miðsvæðis í Riga

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli

ca. 30 mín akstur

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

(Kostar 8,900 kr./mann að bæta við, miðast við 40 manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Tilboð 1

Hótel

AC Hotel by Marriott Riga Hotel

****

C Hotel Riga er glæsilegt 4 stjörnu hótel í sögufrægu Art Nouveau hverfi miðborgar Riga. Hér sameinast rólegt umhverfi og nálægð við helstu kennileiti borgarinnar – aðeins stutt göngufæri frá gamla bænum og aðdráttaraflum eins og söfnum, verslunum og veitingastöðum. Hótelið býður upp á nútímalega aðstöðu og fjölnota fundarsali á efstu hæð með fallegu útsýni.

Í kringum hótelið er líflegt menningarlíf, listagallerí, íþróttaaðstaða og viðburðastaðir sem gera dvölina enn fjölbreyttari. AC Hotel Riga er frábær kostur fyrir hópa sem vilja upplifa einstaka blöndu af þægindum, menningu og miðborgarlífi – án þess að fórna ró og gæðum.


Hótelið fær heildareinkunn 9,0 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

113.990 kr.

á mann í tvíbýli

139.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 2

Hótel

Radisson Blu Ridzene

****

Hið 4 stjörnu Radisson Blu Ridzene Hotel er með útsýni yfir Esplanade Park í Ríga og er staðsett í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá sögulega gamla bænum. Það býður upp á herbergi með ókeypis Wi-Fi Interneti og setusvæði.


Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er borið fram á hverjum morgni á veitingastað hótelsins, Piramida, sem sérhæfir sig í alþjóðlegum réttum. Gestir geta fengið sér drykk eða snarl á Ridzene Bar & Library.


Líkamsræktaraðstaðan á staðnum býður upp á hjarta- og þyngdarþjálfunarvélar, gufubað og eimbað. Starfsfólk móttökunnar er til taks allan sólarhringinn.


Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

119.990 kr.

á mann í tvíbýli

152.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 3

Hótel

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel

****

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 

Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.

Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00. Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.

Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.


Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.


Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

118.990 kr.

á mann í tvíbýli

154.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 4

Hótel

Radisson Blu Elizabete Hotel

****

Radisson Blu Elizabete Hotel er staðsett í Ríga, í 550 metra fjarlægð frá Frelsisvarðanum, og býður upp á rúmgóð, loftkæld herbergi með ókeypis WiFi. Hótelið er einnig með gufubað og heilsuræktarmiðstöð.


Herbergin á Radisson Blu Elizabete Hotel eru innréttuð í nútímalegum stíl. Öll herbergin eru með stóran flatskjá með gervihnattarásum og rúmgóð setusvæði. Öryggishólf, skrifborð og hraðsuðuketill eru einnig til staðar.


Gamli bærinn í Ríga, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, er aðeins í 750 metra fjarlægð frá Radisson Blu Elizabete Hotel. Dómkirkjan í Ríga er í 400 metra fjarlægð. Almenningsgarður og margar verslanir eru á svæðinu.


Veitingastaðurinn C.U.T. framreiðir lífrænan mat, en sérhæfir sig í grillréttum og suður-amerískri matargerð. Veitingastaðurinn býður einnig upp á úrval af vínum. Gestir geta einnig nýtt sér bar hótelsins.


Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

119.990 kr.

á mann í tvíbýli

165.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

GSM. 895-9666

Netfang. julia@tripical.com