Til Haag


23.-30. mars & 6.-12. apríl 2026


Tilboðið miðast við 80 manns og gengi dagsins gildir til 9.10. 2025


Haag er hrífandi borg, skreytt gömlum og heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og fjölskrúðugum almenningsgörðum. Þetta er staður sem blómstrar af líflegri menningu, skemmtun og gleði.


Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam, sem og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu endurreisnarhúsa frá 17. öld sem algeng eru í landinu, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok- og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endurreisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouveau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, gyllt sandströndin að Norðursjó.
Af nægu er að taka í afþreyingu fyrir forvitna og gleðiþyrsta gesti.

 Elsta gata borgarinnar er Molenstraat, og hana er gaman að ganga og skoða. Til að fá gott útsýni yfir borgina má til dæmis nefna parísarhjólið The Pier Skyview. Einnig má gera sér glaðan dag á Scheweningen ströndinni, hvort sem er í sandi og sjó, eða á hinum fjölmörgu kaffihúsum og veitingastöðum í grenndinni. Bjórinn í borginni er auðvitað fyrsta flokks, við mælum með heimsókn í Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder, sem er bjórbruggunarstöð staðsett í munkaklaustri.

Þú getur farið í hressandi spíttbátareisu fyrir utan ströndina, leigt þér hjól og skoðað borgina, farið á einn af stærstu útimörkuðum Evrópu, De Haagse Markt, litið inn á söfn, skoðað gamlar glæsilegar byggingar, og fleira og fleira. Góða skemmtun og gangi þér allt í Haag!


 Hvað er hægt að gera í Haag

Scheveningen ströndin er fullkomin fyrir afslappandi göngutúr og horfa á sólsetrið.

Skoða meistaraverk eins og Vermeer's Girl with a Pearl Earring og verk Rembrandts í Mauritshuis safninu

Rölta um og skoða fallegar og sögulegar byggingar í miðborginni.

Rölta um einn af elstu skógum Hollands og sjá konungshöllina Huis ten Bosch, búsetu hollenskra ættingja

Taka skoðunartúr um Peace Palace, heimili Alþjóðadómstólsins og læra um alþjóðlegt réttlæti.

Njóta sín í mat og drykk á hinum ýmsu skemmtilegu stöðum eins og Foodhallen Den Haag.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair  til og frá Amsterdam með  20 kg tösku og handfarangri

Flogið út

Brottför 1 Icelandair 40 sæti:

Frá Keflavík mánudaginn 23. mars kl. 07:40, lent kl. 11:55 í Amsterdam


Brottför 2 Icelandair 40 sæti:

Frá Keflavík mánudaginn 6. apríl  kl. 17:05, lent kl. 19:10 í Amsterdam

Flogið heim

Heimför 1 Icelandair 40 sæti:

Flogið frá Amsterdam, mánudaginn 30. mars kl.17:20 og lent á Keflavík kl 18:35.


Heimför 2 Icelandair 40 sæti:

Flogið frá Toronto mánudaginn 6. apríl kl.17:20 og lent á Keflavík kl 18:35.

Gisting

7 nætur á hóteli miðsvæðis í Haag Innifalið er morgun-verður, wi-fi og citytax.

Rútur

  • Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími er ca 45 mín

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

(Kostar 8.900 kr./mann að bæta við, miðast við 80 manns)



Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Tilboð 1

Hótel

Novotel Den Haag World Forum

****

Þetta glæsilega 4 stjörnu hótel er staðsett í sögufrægri verslunargötu og býður upp á nútímaleg herbergi með útsýni yfir þinghúsið Binnenhof.
Njóttu alþjóðlegra rétta á Gallery61 veitingastaðnum og slakaðu á á fallegum útisvölum þegar veður leyfir.
Hótelið býður upp á líkamsrækt með borgarútsýni, fundaraðstöðu og takmarkaðan bílastæðakost.
Verslanir og söfn eru í göngufæri – fullkomið fyrir bæði hópa og einstaklinga.


Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 9,5 fyrir staðsetningu.


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

229.990 kr.

á mann í tvíbýli

347.990 kr.

á mann í einbýli

Tilboð 2

Hótel

voco The Hague

****

Voco The Hague by IHG er í 600 metra frá miðbænum og 2,7 km frá Madurodam.


Herbergin eru með sérbaðherbergi með hárþurrku og sum státa af borgarútsýni. Allar gistieiningarnar eru með fataskáp og ketil.


Morgunverðarhlaðborð, à la carte- eða léttur morgunverður er í boði á gististaðnum.


Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og það er reiðhjólaleiga á hótelinu.


Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com 


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.


227.990 kr.

á mann í tvíbýli

346.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 3

Hótel

Marriott Hotel The Hague

****

The Hague Marriott Hotel býður upp á þægileg herbergi og svítur á alþjóðlega svæðinu milli Haag og Scheveningen. Gestir geta snætt á afslöppuðum veitingastaðnum og hærri hæðirnar bjóða upp á glæsilegt borgarútsýni. Öll 306 herbergin og svíturnar eru með hljóðeinangrun, flatskjá, loftkælingu og setusvæði. Skrifborð og fartölva eru einnig til staðar. Sérbaðherbergið er með sturtu og salerni, en sum herbergin eru einnig með baðkar. The Hague Marriott Hotel er með Executive Club-setustofu, viðskiptamiðstöð og fundarherbergi fyrir 10 til 700 gesti. Gestir geta haft það náðugt á kyrrlátri garðverönd, fengið sér drykk á barnum eða æft sig í líkamsræktaraðstöðunni. Gallery Restaurant býður upp á alþjóðlega matargerð. Reiðhjólaleiga er í boði á staðnum. The Hague Marriott Hotel er staðsett miðsvæðis, nálægt Friðarhöllinni, Madurodam og safninu Gemeentemuseum. Aðalverslunarsvæði Haag og Scheveningen-ströndin eru í 15 mínútna akstursfjarlægð


Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 8,3 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

GSM. 895-9666

Netfang. julia@tripical.com