Til Barcelona


4.–7. september 2026



Tilboðið miðast við 50 manns og gildir til 22.09.2025


Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí. Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla.

Barcelona er borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelona býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.

Arkitektúr borgarinnar er æði fjölbreyttur. Turnar úr gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Þá er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí.

Göngugötur Barcelona eru vinsælar og oft margt um manninn. Frægust þeirra er Ramblan, La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur á hverju strái. Berceloneta heitir þekktasta strönd borgarinnar, þar sleikir Miðjarðarhafssólin gylltan sand og heiðblátt hafið. Barcelona er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa litríka menningu.


Hvað er hægt að gera í  Barcelona

Stytturnar og gosbrunnarnir á Placa de Catalunya eru sjón að sjá

Í Sants Montjuic geturðu farið með kláf frá strönd og hátt upp í fjall. 

Barri Gotic hverfið er fullt af miðaldabyggingum og nokkrum sem eru enn eldri 

La Sagrada Familia kirkjan er auðvitað bara skylduheimsókn! Enginn fer frá borginni án þess að hafa farið þangað

Park Güellgarðurinn hefur skrýtnar og stórskemmtilegar byggingar Gaudi

Þú finnur allt sem þig langar að borða í Barcelona - er þú verður að prófa katalónska matargerð


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair til og frá Barcelona með  20 kg tösku og handfarangri

Flogið út

Flogið með Icelandair út 4. september kl. 08:25 og lent í Barcelona kl: 14:45


Flogið heim

Heimkoma með Icelandair  7. september kl. 15:45

Lent í Keflavík kl. 18:20

Gisting

3 nætur á hóteli miðbsæðis í Barcelona. Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

(Kostar 11.900 kr./mann að bæta við, miðast við 50 manns)



Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Tilboð 1

Hótel

Catalonia Catedral

****


Catalonia Catedral er staðsett í fallegu módernistahúsi, aðeins 100 metra frá dómkirkjunni í Barcelona. Hótelið býður upp á ókeypis Wi-Fi, árstíðabundna sundlaug á þaki og japanskan innblásinn garð og verönd.

Herbergin eru stílhrein og nútímaleg, með flatskjá, Chromecast, loftkælingu, minibar og Nespresso-kaffivél.

Veitingastaðurinn Ascent by Eboca býður upp á ljúffenga Miðjarðarhafsmatargerð með útsýni yfir listasafnið Palacio Pignatelli. Í móttökunni er einnig bar og aðgangur að tölvum og prenturum án aukakostnaðar.

Hótelið er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Las Ramblas og Plaza Catalunya, og innan við kílómetra frá gamla höfninni. Jaume I neðanjarðarlestarstöðin er í 5 mínútna fjarlægð



Hótelið fær heildareinkunn 9,1 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.



179.990 kr.

á mann í tvíbýli

229.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 2

Hótel

Exe Plaza Catalunya

****

Exe Plaza Catalunya er staðsett á besta stað í Eixample-hverfinu í Barselóna, 2,7 km frá Sant Miquel-ströndinni, 2,9 km frá Somorrostro-ströndinni og 2,9 km frá Barceloneta-ströndinni. Meðal þjónustu í boði á gististaðnum má nefna sólarhringsmóttöku, alhliða móttökuþjónustu og ókeypis WiFi hvarvetna á gististaðnum. Gestir geta fengið upplýsingar um svæðið hjá upplýsingaborði ferðaþjónustu.


Áhugaverðir staðir í nágrenni gististaðarins eru meðal annars Plaça Catalunya, Boqueria-markaðurinn og Tivoli-leikhúsið. Næsti flugvöllur er El Prat-flugvöllurinn í Barselóna en hann er í 15 km fjarlægð frá Exe Plaza Catalunya.


Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum. 




174.990 kr.

á mann í tvíbýli

239.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 3

Hótel

INNSiDE by Meliá Barcelona Apolo

****

INNSiDE by Meliá Barcelona Apolo er glæsilegt hótel staðsett við rætur Montjuïc-hæðarinnar, aðeins í 7 mínútna göngufjarlægð frá hinum líflegu Ramblas-götum Barcelona. Hótelið býður upp á móttöku allan sólarhringinn og nútímaleg, loftkæld herbergi með ókeypis þráðlausu neti.

Herbergin voru endurnýjuð árið 2023 og eru smekklega innréttuð með viðargólfi og hlýlegum litum. Þau eru búin flatskjá, minibar, skrifborði og sérbaðherbergi með hárþurrku – allt sem þarf til að slaka á eftir skemmtilegan dag í borginni.

Á morgnana er boðið upp á fjölbreyttan morgunverð í hlaðborði og á kvöldin er hægt að fá létta rétti á notalegum snarlbar hótelsins.

Parallel-neðanjarðarlestarstöðin er rétt við hótelið og tengir gesti beint við Fira-ráðstefnumiðstöðina á aðeins tveimur stoppum – sem gerir hótelið að frábærum kost fyrir bæði viðskipta- og hópaferðir.


Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum. 




179.990 kr.

á mann í tvíbýli

239.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

GSM. 895-9666

Netfang. julia@tripical.com