
Til Alicante
5–8 september 2026
Tilboðið miðast við 50 manns og gildir til 22.09.2025
Mitt í Costa Blanca héraðsins á Spáni er borgin Alicante. Borgin er þekkt fyrir mikla mat og vínmen ningu, minjar og sögu sem spannar 7000 ár. Strandlengjan í borginni er 7km löng og iðar af mannlífi.
Alicante býður upp á margt fleira en strandlíf og slökun. Borgin er falleg og þarna er hægt að finna fjölda áhugaverða safna, sögulegar minjar frá tímum máranna, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Mikil matar- og vínmenning er á svæðinu sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingastaða.
Helsta kennileiti borgarinnar er kastalinn Santa Barbara frá 9.öld, hægt er að ganga upp að honum eða taka lyftuna og njóta útsýnisins.
Gott er að versla í Alicante, þar eru nokkrar stórar verslunarmiðstöðvar. Ramblan er göngugata með úrvali af verslunum og veitingastöðum með gómsætum kræsingum frá öllum heimshornum. Við mælum sérstaklega með tapas að hætti heimamanna.
Næturlífið á Alicante er frábært, og eru fjölmargir barir, skemmtistaðir og næturklúbbar í borginni. Gamli bærinn, El Barrio, er mjög líflegur á kvöldin sem og El Puerto þar sem skemmtistaðir eru opnir til morguns.
Hvað er hægt að gera í Alicante
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Tilboð 1
Hótel
Melia Alicante
****
Meliá Alicante er staðsett á milli hafnarinnar í Alicante og Postiguet-strandarinnar og býður upp á útisundlaug ásamt ókeypis WiFi hvarvetna. Öll herbergin eru með verönd og sum eru með sjávarútsýni.
Öll herbergin á Melia Alicante eru rúmgóð og eru með loftkælingu, flatskjá með gervihnattarásum, minibar og öryggishólf. Baðherbergin eru nútímaleg og eru með snyrtivörum og hárþurrku.
Veitingastaður hótelsins, Trasluz, sérhæfir sig í hrísgrjónaréttum og ferskum fiski. Það er einnig til staðar snarlbar við sundlaugina og glæsilegur setustofubar.
Hótelið býður einnig upp á persónumiðaða The Level-þjónustu í sumum af herbergjum hótelsins. Þessi þjónusta er aðeins fyrir fullorðna og innifelur fjölbreytta úrvalsþjónustu og -aðstöðu og má þar með nefna einkamóttöku, flýtiinnritun og -útritun, aðgang að einkasundlaug með stórkostlegu sjávarútsýni, aðgang að opnum bar með ókeypis drykkjum og snarli o.s.frv.
Hótelið snýr í átt að spilavítinu í Alicante og er í aðeins 50 metra fjarlægð frá snekkjuklúbbnum og smábátahöfninni. Santa Barbara-kastalinn og fornminjasafnið eru í aðeins 800 metra fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,2 og 9,4 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
184.990 kr.
á mann í tvíbýli
284.990 kr.
á mann í einbýli
Hótel
Eurostars Lucentum
****
Hið nútímalega Eurostars Lucentum er staðsett í miðbæ Alicante á Alfonso X breiðgötunni. Öll loftkældu herbergi eru með ókeypis Wi-Fi internet og á staðnum er einnig veitingastaður.
Lucentum Eurostars er að finna við hliðina á Alicante miðbæjarmarkaðinum, sem er í 10 mínútna göngufjarlægð frá höfninni. Á móti hótelinu er sporvagnastoppistöð, sem veitir þægilegan ferðamáta um alla borgina.
Rúmgóðu herbergin eru öll með nútímaleg baðherbergi og sjónvarp. Þau eru einnig með öryggishólf og hárþurrku.
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
175.990 kr.
á mann í tvíbýli
252.990 kr.
á mann í einbýli
Tilboð 3
Hótel
INNSiDE by Meliá Alicante Porta Maris
****
Upplifðu Alicante á einstakan hátt – hótelið er staðsett milli Postiguet-strandar og smábátahafnarinnar, aðeins 100 metra frá gamla bænum. Herbergin eru stílhrein og þægileg með sérverönd, Smart TV og útsýni yfir höfnina eða flóann.
Slakaðu á í sundlaug með sjávarútsýni, nýttu þér opið 24/7 líkamsræktarsvæði og njóttu jóga og pilates í rólegu umhverfi. Halo Spa býður afslátt á meðferðum og heitum böðum.
COR Restaurant & Lounge er hjarta hótelsins – lifandi tónlist, Miðjarðarhafsmatur og óviðjafnanlegt útsýni. Bar Sideral býður drykki við sundlaugina og ferskt matseðil undir sólinni.
Fyrir fundi og viðburði er boðið upp á fjölbreytt og sveigjanlegt rými með náttúrulegri lýsingu og sjávarútsýni.
INNSiDE er fyrir þá sem vilja meira – hönnun, orka og upplifun í miðri Miðjarðarhafsperlu.
Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
203.990 kr.
á mann í tvíbýli
294.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!