
Þórshafnar
01. - 03. maí 2026
Tilboðið miðast við 400 manns á gengi dagsins
Mystísk náttúruperla í næsta nágrenni. Um 400 km. suð-austan við Ísland liggur lítill eyjaklasi, 18 stærri og minni samliggjandi eyjar, sem á korti líta út eins og kubbar sem eftir á að púsla saman í heilstæða mynd. Færeyjar.
Færeyjar láta kannski lítið fyrir sér fara, en búa sannarlega yfir einskærri náttúrufegurð. Þar er landslag mjög stórbrotið og hlaðið óvenjulegri mystík, sem ljósmyndarar víðs vegar úr heiminum sækja í. Höfuðstaðurinn Þórshöfn er stórskemmtilegur, Færeyingar frábærir gestgjafar, og heimsókn þangað ávísun á óvenjulega og heillandi skemmtun.
Það er auðvelt að fara á milli staða í Færeyjum og þar eru vegir góðir. Göng og brýr tengja saman helstu eyjar og þar sem slíkt er ekki til staðar ganga almenningsferjur mjög reglulega.
Þetta er einstakur staður fyrir útivistarfólk, gönguleiðir má finna þvers og kruss um eyjarnar, sem leiða þig um grösuga firði og dali, og sýna þér falda fossa sem birtast eins og úr skálduðu ævintýri. Hvert sem litið er blasir við ótrúlegt útsýni. Af náttúruperlum eyjanna má nefna Vestmanna fuglabjörgin, Risin og Kellingin sem sjá má frá bænum Tjørnuvík, og eyjuna Mykines, sem er algert undur öll eins og hún leggur sig. Þetta eru þó aðeins örfá dæmi, og erfitt að velja einstaka staði úr fjölbreyttum sjóði. Sjón er sögu ríkari!
Hvað er hægt að gera í Þórshöfn
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Tilboð 1
1/3 af hóp gistir á
Hilton Garden Inn Faroe Islands í Þórshöfn býður upp á 4 stjörnu gistirými með heilsuræktarstöð og bar. Gistirýmið býður upp á herbergisþjónustu, sólarhringsmóttöku og gjaldeyrisskipti fyrir gesti.
Öll herbergin á hótelinu eru með skrifborð. Herbergin eru með öryggishólfi og sum herbergin eru einnig með sjávarútsýni. Öll herbergin á Hilton Garden Inn Faroe Islands eru með flatskjá og ókeypis snyrtivörur.
Gistirýmið býður upp á morgunverðarhlaðborð eða léttan morgunverð. Á Hilton Garden Inn Faroe Islands er veitingastaður sem framreiðir franska, sjávarrétti og staðbundna matargerð. Grænmetisréttir, mjólkurlausir réttir og veganréttir eru einnig í boði gegn beiðni.
Á booking.com fær hótelið 8.6 í heildareinkunn, starfsólk fá 9,0 og staðstening fá 8.2.
10 mín labb er á milli Brandon og Hilton (700m)
1/3 af hóp gistir á
Hotel Brandan
****
Hotel Brandan er staðsett í Þórshöfn, 2,3 km frá Sandagerði-ströndinni og býður upp á gistirými með heilsuræktarstöð, ókeypis einkabílastæði, verönd og veitingastað. Gististaðurinn er með sólarhringsmóttöku, flugrútu, herbergisþjónustu og ókeypis WiFi hvarvetna.
Einingarnar eru með flatskjá með gervihnattarásum, minibar, katli, sturtu, ókeypis snyrtivörum og skrifborði. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi með hárþurrku og sum eru með fjallaútsýni. Öll herbergin eru með fataskáp.
Morgunverðarhlaðborð, à la carte- eða léttur morgunverður er í boði á gististaðnum.
Hótelið býður upp á 4-stjörnu gistirými með gufubaði. Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og á Hotel Brandan er boðið upp á reiðhjóla- og bílaleigu.
Hótelið fær
8,8 í heildareinkunn á booking.com, starfsfólk fær
9.1 og staðsetningin
8,7
10 mín labb er á milli Brandon og Hilton (700m)
Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
1/3 af hóp gistir á
Hotel Føroyar
****
Hotel Føroyar var hannað af vel þekktum dönskum arkitektum, Friis & Moltke. Herbergin eru máluð í þægilegum litum og nútímalega hönnuð af Philippe Starck og Montana. Þau eru öll með sjónvarp með kapal- og gervihnattarásum.
Harðgert landslagið er vinsælt meðal göngufólks. Føroyar Hótel er í 3 mínútna akstursfjarlægð frá menningarmiðstöðinni í Norræna húsinu. Gamli bærinn, Tinganes, er í 3 km fjarlægð.
Hótelið fær 8,4 í heildareinkunn á booking.com, starfsfólk fær 8,9 og staðsetningin 8,7
35 mín labb frá þessu hóteli að hinum hótelunum (2,8km)
Möguleiki að skipuleggja daglega hótel rútu milli hótela.
Kvöldverður fyrir hópinn ykkar - Verð
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
Verðin
119.990 kr.
á mann í tvíbýli
154.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Arnór Fannar Reynisson
Fyrirtækjaferðir
Sími. 519-8900
Netfang. Arnor@tripical.com