Til Sitges

30. apríl - 03. maí 2026 & 01.-04. maí 2026

Tilboðið miðast við 410 manns á gengi dagsins og gildir til 10.10.2025


Fjölbreytileikanum fagnað í suðrænni paradís!
35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin sólríka og sykursæta Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheita næturlífi og frábæru festivölum. Yndislegur staður!

Fjölbreytileikanum er fagnað í þessum dásemdar smábæ með dansi og tónlist hvenær sem færi gefst. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur, hvers kyns eða kynhneigðar sem það er. Hér eru allir vinir, og öllum áhyggjum og óþarfa leiðindum er góðfúslega vísað frá. Litlir götustígar skera bæjarkjarnann þvers og kruss. Alls staðar eru litlar verslanir, skemmtilegir veitingastaðir og krár, þar sem auðvelt er að finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem lagst er í gott sólbað á einni af þeim 13 ströndum sem tilheyra svæðinu.

Sitges er stundum nefnd Festivalabærinn. Árið um kring standa yfir hátíðir af ýmsu tagi. Þekktust er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming yfirtaka bæinn. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt öðrum minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun


Hvað er hægt að gera í Sitges

Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði

Fjöldi dásamlegra stranda til að njóta góða veðursins og kannski frískandi drykk

Barcelona er skammt undan og auðvelt að taka sér dagsferð þangað með lest.

Hin fallega Bartomeu kirkja frá 17. öld stendur við ströndina rétt neðan við bæjarkjarnann

Vinsælur hjólreiðatúrar til vínbænda sem hróðugir bjóða upp á smakk af framleiðslu sinni

Hér er svo gott að liggja í leti og slaka á, tana og njóta, borða, drekka, versla, elska!


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til Barcelona með leiguflugi

  • innritaður farangur
  • handfarangur


Flogið út

Flogið út frá Keflavík
(tímasetning liggur ekki fyrir)

Áætlaður flugtími 4h 20mín

Flogið heim

Flogið heim frá Barcelona  til KEF

Flugtími liggur fyrir þegar nær dregur

Áætlaður flugtími 4h 35mín

Gisting

3 nætur á hóteli í Sitges.
Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli,

Aksturstími ca 30 mín - 26km

Fararstjórn

Tveir skemmtilegir Tripical fararstjórar fylgja frítt með þessum hópi.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Tilboð 2

Hótel

Melia Sitges

****

Melia Sitges er staðsett á rólegu svæði í Sitges, í aðeins 3 mínútna göngufjarlægð frá Balmins- og Aiguadolç-ströndunum.


Meliá Sitges er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Aiguadolç-smábátahöfninni og í 15 mínútna göngufjarlægð frá líflega miðbænum. Lestarstöðin er í 20 mínútna göngufjarlægð en hún býður upp á tengingar við miðbæinn á aðeins 40 mínútum.


Veitingastaðurinn Saffron Bistrot framreiðir Miðjarðarhafsrétti. Það er einnig til staðar glæsilegur kokkteilbar með skemmtilegu útisvæði.


Heildareinkunn 8.7, starfsfólk fær 9,1 og 8,5 fyrir staðsetningu á booking.com 

Aksturstími frá flugvelli ca 30mín - 26km

Verðin

224.990 kr.

á mann í tvíbýli

264.990 kr.

á mann í einbýli


Aðstaða fyrir viðburði á Melia hótelinu

Hótelið býður upp á nokkra flotta staði til að halda viðburði.
Aðal salurinn Tramuntana, er þrískiptur og tekur allt að 900 manns í sæti.
Hægt er að skipta honum upp í 240, 480 eða 900 manna rými.

Áætlaður kostnaður við viðburði:

  1. Fordrykkur:
  2. XX á klukkustund
  3. Árshátíðarsalur
  4. xx € á mann fyrir 3 rétta máltíð

Hér má skoða bækling um hótelið








ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com