Til Riga

01.-03. maí 2026

Tilboðið miðast við 400 manns og gengi dagsins


Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi. 

Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinumýymsu snyrtistofum borgarinnar. 

Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.


 Hvað er hægt að gera í Riga

Art Nouveau safnið er ansi magnað

Slaka á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstök


Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Þú ert umkringdur gömlum byggingum sem gaman er að skoða.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með leiguflugi

  • innritaður farangur
  • handfarangur


Flogið út

Flugáætlun kemur síðar
Áætlaður flugtími 3:35

Flogið heim

Flugáætlun kemur síðar
Áætlaður flugtími 3:55

Gisting

2 nætur á hóteli miðsvæðis í Riga

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Riga

ca. 30 mín akstur

Fararstjórn

3 farastjórar innifaldir í verðinu

 miðast við 400 manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Tilboð 1

Hótel

Radisson Blu Elizabete Hotel

****

Radisson Blu Elizabete Hotel er staðsett í Ríga, í 550 metra fjarlægð frá Frelsisvarðanum, og býður upp á rúmgóð, loftkæld herbergi með ókeypis WiFi. Hótelið er einnig með gufubað og heilsuræktarmiðstöð.


Herbergin á Radisson Blu Elizabete Hotel eru innréttuð í nútímalegum stíl. Öll herbergin eru með stóran flatskjá með gervihnattarásum og rúmgóð setusvæði. Öryggishólf, skrifborð og hraðsuðuketill eru einnig til staðar.


Gamli bærinn í Ríga, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, er aðeins í 750 metra fjarlægð frá Radisson Blu Elizabete Hotel. Dómkirkjan í Ríga er í 400 metra fjarlægð. Almenningsgarður og margar verslanir eru á svæðinu.


Veitingastaðurinn C.U.T. framreiðir lífrænan mat, en sérhæfir sig í grillréttum og suður-amerískri matargerð. Veitingastaðurinn býður einnig upp á úrval af vínum. Gestir geta einnig nýtt sér bar hótelsins.


Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

147.990 kr.

á mann í tvíbýli

177.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 2

Hótel

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel

****

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 

Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.

Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00. Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.

Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.


Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.


Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

145.990 kr.

á mann í tvíbýli

169.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 3

Hótel

AC Hotel by Marriott Riga Hotel

****

AC Hotel Riga hótelið er þægilega staðsett í hinu heillandi Art Nouveau-hverfi í miðbæ Riga. Gestir geta því flúið hávaða miðbæjarins á meðan þeir eru í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá gamla bænum í Riga og áhugaverðustu stöðum borgarinnar.


AC Hotel Riga er með 239 hótelherbergi og svítur og býður einnig upp á 4 fjölnota ráðstefnuherbergi sem eru staðsett á efri hæð hótelsins og rúma 184 gesti í stærsta fundarherbergi hótelsins.


Gististaðurinn er umkringdur veitingastöðum, kaffihúsum og sælkeraverslunum, söfnum og listagalleríum, byggingum í Art Nouveau-stíl, íþróttaaðstöðu, tónleika og viðburðavettvöngum.

Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

154.990 kr.

á mann í tvíbýli

169.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 4

Hótel

 Lielupe Hotel SPA & Conferences by Semarah

****

Lielupe Hotel SPA & Conferences by Semarah var enduruppgert árið 2016 og er staðsett á rólegu svæði í Jurmala, umkringt skógi og 400 metrum frá Eystrasalti.


Glæsileg herbergin á Lielupe Hotel SPA & Conferences eru með öryggishólfi og svölum. Sérbaðherbergin eru með hárþurrku og snyrtivörum.


Veitingastaðurinn Lielupe býður gestum sínum upp á umfangsmikla alþjóðlega, lettneska og rússneska matargerð. Á sumrin geta gestir notið máltíða á opnu veröndinni og það er einnig sérstakur barnamatseðill.


Rúmgóð heilsulind býður upp á mismunandi heilsulindarmeðferðir, saltklefa, sundlaug og barnalaug. Heitur pottur er einnig til staðar. Fyrir virka tómstundir er líkamsræktarstöð og jóga- og líkamsræktarsalur í boði. Útisundlaug með ótakmarkaðan aðgang er í boði á heitum sumrum.


Ráðstefnu- og viðburðamiðstöð býður upp á margs konar ráðstefnusölum og sal. Hægt er að skipuleggja viðburði í sal á 10. hæð með víðáttumiklu útsýni.

Jurmala-ströndin er aðeins í 100m fjarlægð

Akstur frá flugvelli um 25mín


Hótelið fær heildareinkunn 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

144.990 kr.

á mann í tvíbýli

169.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com