Til Malta

30. apríl - 03. maí 2026 & 01.-04. maí 2026

Tilboðið miðast við 410 manns á gengi dagsins og gildir til 20.10.2025


Mitt í Miðjarðarhafinu stendur smáríkið Malta, með sínum aldagömlu musterum og virkjum, og forsögulegu minjum. Byggð á eyjunum má rekja síðan löngu fyrir Kristburð, og ekki að undra. Þar er svo ósköp gott að vera.

Malta samanstendur af litlum eyjaklasa mitt á milli Sikileyjar og stranda Norður-Afríku. Á eyjunum er ýmislegt markvert að sjá. Fyrst ber að nefna hina smáu höfuðborg, Valletta, sem öll er byggð í anda 16. aldar, en hana má finna á Heimsminjaskrá Unesco. Þá er hin forna höfuðborg Mdina (stundum nefnd Þögla borgin) áhugaverður staður, sem og Vittoriosa, og hinar fögru byggingar þar. Einnig má nefna að Maltverjar eiga eins og við, sitt Bláa Lón (Blue Lagoon), sem er falleg lítil vík með kristaltærum sjó og hreinni strönd.

Þrátt fyrir smæð sína er Malta rík af sögu sem nær aftur til 4 árþúsundum fyrir Krist, og þar má finna ýmsar fornminjar því til sönnunar. Reyndar eru á eyjunum nokkrar af elstu uppistandandi byggingum í heimssögunni. En hér er margt fleira að gera en skoða forn hýbýli. Malta er nútímastaður sem býður upp á fyrsta flokks afþreyingu fyrir ferðamenn. Hér er upplagt að njóta veðurblíðunnar á góðri siglingu eða sörfbretti. Menningarlífið blómstrar, hér má finna jassfestivöl, karnivöl og aðrar skemmtanir, og borgirnar allar með úrval af fínum veitingastöðum og börum. 


Hvað er hægt að gera á Möltu


Eyjan Gozo er stórbrotið náttúruundur. Skemmtileg staðreynd: Leikarinn Billy Connolly býr á eynni

Vertu vakandi fyrir bæjarhátíðum, líkt og á Íslandi á hér hver bær sína hátíð sem er frábær skemmtun

Víða á Möltu hafa margar stórmyndir verið teknar og Malta Film Tour býður upp á leiðsögn um þá staði

Suðurhluti Möltu er minna þekktur af ferðamönnum, en þar finnurðu hina sönnu maltnesku lífshætti 

Það er svokallað "möstsí" að skoða einhverja af elstu byggingum heims, sem hér standa

Lókalbjórinn heitir Cisk, og þykir bæði afar bragðgóður og svalandi á heitum degi


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til Möltu með leiguflugi

  • innritaður farangur
  • handfarangur


Flogið út

Flogið út frá Keflavík
(tímasetning liggur ekki fyrir)

Áætlaður flugtími 4h 45mín

Flogið heim

Flogið heim frá Möltu  til KEF

Flugtími liggur fyrir þegar nær dregur

Áætlaður flugtími 5h

Gisting

3 nætur  á hóteli í Möltu.
Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli.
Aksturstími ca 55 mín - 62km

Fararstjórn

Þrír skemmtilegir Tripical fararstjórar fylgja frítt með þessum hópi.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



The Westin Dragonara Resort

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

The Westin Dragonara Resort, Malta er með útsýni yfir Miðjarðarhafið í St Julian's og býður upp á 2 einkastrendur, inni- og útisundlaugar, þar af ein upphituð, og 3 veitingastaði. Móttakan er opin allan sólarhringinn.


Gestir geta slakað á í heita pottinum, notið nudds eða setið úti á Bayview sólarveröndinni sem er búin ókeypis sólbekkjum og sólhlífum. Líkamsræktin er fullbúin með nútímalegum vélum og lóðum.


Veitingastaðir Westin Dragonara Resort á Möltu framreiða evrópska og Miðjarðarhafsmatargerð. Hinn margverðlaunaði Terrace Restaurant býður upp á daglegan morgunverð og Palio's Trattoria býður upp á ítalska sérrétti. Quadro Restaurant framreiðir einfaldan, heimagerðan mat. Drykkir eru fáanlegir þar til seint á bar móttökunnar.


Heildareinkunn 9,2  og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com 

Aksturstími frá flugvelli ca 20mín / 12km

Aðstaða fyrir viðburði

Hægt er að vera með kvöldverð bæði innan/utandyra

fyrir allt að 400/410 manns - Aðeins 1.Maí í boði


  • Fordrykkur - Verð frá xx€
  • 3ja rétta matseðill - Verð frá 55€
  • Opinn bar í 1 klst - Verð frá 26€

269.990 kr.

á mann í tvíbýli

339.990 kr.

á mann í einbýli


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com