
Til Haag
01. - 03. maí 2026
Tilboðið miðast við 400 manns og gengi dagsins
Haag er hrífandi borg, skreytt gömlum og heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og fjölskrúðugum almenningsgörðum. Þetta er staður sem blómstrar af líflegri menningu, skemmtun og gleði.
Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam, sem og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu endurreisnarhúsa frá 17. öld sem algeng eru í landinu, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok- og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endurreisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouveau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, gyllt sandströndin að Norðursjó.
Af nægu er að taka í afþreyingu fyrir forvitna og gleðiþyrsta gesti.
Elsta gata borgarinnar er Molenstraat, og hana er gaman að ganga og skoða. Til að fá gott útsýni yfir borgina má til dæmis nefna parísarhjólið The Pier Skyview. Einnig má gera sér glaðan dag á Scheweningen ströndinni, hvort sem er í sandi og sjó, eða á hinum fjölmörgu kaffihúsum og veitingastöðum í grenndinni. Bjórinn í borginni er auðvitað fyrsta flokks, við mælum með heimsókn í Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder, sem er bjórbruggunarstöð staðsett í munkaklaustri.
Þú getur farið í hressandi spíttbátareisu fyrir utan ströndina, leigt þér hjól og skoðað borgina, farið á einn af stærstu útimörkuðum Evrópu, De Haagse Markt, litið inn á söfn, skoðað gamlar glæsilegar byggingar, og fleira og fleira. Góða skemmtun og gangi þér allt í Haag!
Hvað er hægt að gera í Haag
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Tilboð 1
Hótel
Marriott Hotel The Hague
****
The Hague Marriott Hotel býður upp á þægileg herbergi og svítur á alþjóðlega svæðinu milli Haag og Scheveningen. Gestir geta snætt á afslöppuðum veitingastaðnum og hærri hæðirnar bjóða upp á glæsilegt borgarútsýni.
Öll 306 herbergin og svíturnar eru með hljóðeinangrun, flatskjá, loftkælingu og setusvæði. Skrifborð og fartölva eru einnig til staðar. Sérbaðherbergið er með sturtu og salerni, en sum herbergin eru einnig með baðkar.
The Hague Marriott Hotel er með Executive Club-setustofu, viðskiptamiðstöð og fundarherbergi fyrir 10 til 700 gesti. Gestir geta haft það náðugt á kyrrlátri garðverönd, fengið sér drykk á barnum eða æft sig í líkamsræktaraðstöðunni. Gallery Restaurant býður upp á alþjóðlega matargerð.
Reiðhjólaleiga er í boði á staðnum. The Hague Marriott Hotel er staðsett miðsvæðis, nálægt Friðarhöllinni, Madurodam og safninu Gemeentemuseum. Aðalverslunarsvæði Haag og Scheveningen-ströndin eru í 15 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 8,3 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
Verðin
139.990 kr.
á mann í tvíbýli
168.990 kr.
á mann í einbýli
Tilboð 2
Hótel
Novotel Den Haag World Forum
****
Novotel Den Haag World Forum er staðsett fyrir ofan World Forum (hollenska ráðstefnumiðstöðin). Auðvelt er að komast að ströndinni í Scheveningen og miðbæ Den Haag með almenningssamgöngum.
Þægilegu herbergin eru með kaffi- og teaðstöðu, minibar, flatskjá, síma og mótaldstengingu. Þau eru einnig með sérbaðherbergi með baðkari eða sturtu. Til þæginda er boðið upp á ókeypis snyrtivörur og hárþurrku.
Veitingastaðurinn er opinn í morgunmat og barinn býður upp á heita rétti á milli 17:00 og 22:00. Gestir geta einnig nýtt sér vellíðunaraðstöðuna gegn aukagjaldi, sem felur í sér gufubað og líkamsræktarstöð. Nudd eru einnig í boði.
Reiðhjólaleiga er í boði á þessu hóteli og svæðið er vinsælt fyrir hjólreiðar. De Fred, fræg verslunargata, er í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Amsterdam Schiphol-flugvöllurinn er í aðeins 40 mínútna fjarlægð frá hótelinu.
Hótelið fær heildareinkunina
7,9 og
8,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
Verðin
139.990 kr.
á mann í tvíbýli
163.990 kr.
á mann í einbýli
Tilboð 3
Hótel
voco The Hague by IHG
****
Voco The Hague by IHG er í 600 metra frá miðbænum og 2,7 km frá Madurodam.
Herbergin eru með sérbaðherbergi með hárþurrku og sum státa af borgarútsýni. Allar gistieiningarnar eru með fataskáp og ketil.
Morgunverðarhlaðborð, à la carte- eða léttur morgunverður er í boði á gististaðnum.
Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og það er reiðhjólaleiga á hótelinu.
Paleis Huis Ten Bosch er 4,1 km frá voco Haag by IHG og Westfield-verslunarmiðstöðin í Hollandi er 7 km frá gististaðnum. Rotterdam Haag-flugvöllur er í 19 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Kvöldverður fyrir hópinn
*hægt er að óska eftir matseðlinum.
Verðin
142.990 kr.
á mann í tvíbýli
169.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!