Til Dubrovnik

30. apríl - 03. maí 2026 & 01.-04. maí 2026

Tilboðið miðast við 410 manns á gengi dagsins og gildir til 20.10.2025


Dubrovnik er staðsett á suðurhorni Króatíu við Adríahaf og er þekkt fyrir hinn gullfallega og ævaforna miðbæ.

Gamli bærinn er fullur af börum, veitingastöðum og litlum verslunum. Ef þú vilt fara í Game of Thrones leiðangur, gjörðu svo vel!


Hér áður fyrr var Dubrovnik sjálfstætt ríki. Þess vegna er gamli bærinn umkringdur virkisveggjum, sem byggðir voru til þess að vernda landið frá árásum Rómverja og margra annara ríkja í gegnum aldirnar.

Í Júgóslavíustríðinu (sem lauk 1995) var borgin nánast eyðilögð en undanfarna áratugi hefur mikil endurbygging átt sér stað og í dag hefur hún nánast komist aftur í sitt gamla form. Byggingalist Dubrovnik er algjörlega mögnuð og ekki skemmir náttúrfegurð Króatíu og stórbrotin fegurð Adríahafsins fyrir. Það má í raun segja að umhverfið sé algjört augnakonfekt.


Hvað er hægt að gera í Dubrovnik

Sigldu meðfram borgarmúrunum, út á eyjuna Lokrum eða upplifðu sólsetrið frá sjónum — ógleymanlegt augnablik!

Röltu um sögulegar götur, sjá hvar Game of Thrones var tekið upp, og njótu lifandi götustemningar og menningar.

Taktu kláfinn upp á fjallið fyrir stórkostlegt útsýni yfir Dubrovnik, eyjarnar og Adríahafið – sérstaklega fallegt í sólsetrinu.

Dagferð út fyrir borgina þar sem þú kynnist króatískum vínræktarbæjum, smakkar heimavín og nýtur sveitalífsins.

Ein af þekktustu ströndum Evrópu – steinsnar frá gamla bænum, með blágrænum sjó og frábærum strandbar.

Kvöldverður undir opnum himni, lifandi tónlist og vín í ljósi kertanna – fullkomin leið til að ljúka deginum.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til Dubrovnik með leiguflugi

  • innritaður farangur
  • handfarangur


Flogið út

Flogið út frá Keflavík
(tímasetning liggur ekki fyrir)

Áætlaður flugtími 4h 45mín

Flogið heim

Flogið heim frá Dubrovnik  til KEF

Flugtími liggur fyrir þegar nær dregur

Áætlaður flugtími 4h 55mín

Gisting

3 nætur  á hóteli í Cavtat.
Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli.
Aksturstími ca 10 mín - 6km

Fararstjórn

Þrír skemmtilegir Tripical fararstjórar fylgja frítt með þessum hópi.


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Hotel Croatia Í Cavtat

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Hotel Croatia stendur á töfrandi skaga með útsýni yfir djúpblátt Adríahafið öðrum megin og hinn sjarmerandi gamla bæ Cavtat hinum megin. Cavtat er lítill perlubær með hvítum húsum, pálmatrjám og líflegum sjávarbakka þar sem hægt er að setjast með vín og horfa á sólina setjast.

Frá hótelinu er hægt að ganga niður í bæinn eða taka taxi-bát beint frá bryggjunni yfir til Dubrovnik, sem gerir það einstaklega þægilegt að sameina ró Cavtat og ævintýri í heimsfrægu borginni.


Aðeins 18 km frá Dubrovnik er hótelið fullkominn upphafsstaður til að kanna suðurhluta Dalmatíu. Hér eru tvær sundlaugar, tvær strendur, nokkrir veitingastaðir og steikhús – svo það er aldrei langt í góða stund.


Hér sameinast sól, sjór og sjarminn í Cavtat – með Dubrovnik í sjónmáli og lífið á hægum takti.


Heildareinkunn 8.8, starfsfólk fær 9,0 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com 

Aksturstími frá flugvelli ca 10mín - 6km

Kvöldverður á hótelinu

Hægt er að vera með kvöldverð bæði innan- og utandyra fyrir

allt að 450 manns.


  • Fordrykkur - Verð frá 17€
  • 3ja rétta matseðill - Verð frá 75€
  • Opinn bar í 1 klst - Verð frá 43€
  • Leiga á sal - Frá 15.000 eur
  • Leiga á næturklúbbi:


Verðin

219.990 kr.

á mann í tvíbýli

269.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com