Til Glasgow


24-27 sept. (fim-sun) & 25-28 sept (fös-mán)


Tilboðið miðast við 170 manns og gengi dagsins gildir til 01.10.2025



Glasgow er stærsta borg Skotlands og ein helsta verslunarborg Bretlands. Töfrandi arkitektúr, frábærir veitingastaðir og krár, ásamt fjörugu næturlífi, enda Skotar eitt skemmtilegasta fólk í heimi.

Tilkomumiklar byggingar Glasgow bera sögu hennar gott vitni, en sérstaklega má nefna afar fallegan arkitektúr frá Viktoríutímanum, sem er eitt stærsta aðdráttarafl borgarinnar. Glasgow var lengi vel mikil iðnaðarborg, en það tók að breytast eftir Kreppuna miklu á fyrri hluta 20. aldar. Siðan þá hefur hún þróast í að verða miðstöð menningar og verslunar, hún hefur t.d. borið titilinn Menningarborg Evrópu, og þar er að finna einn stærsta vettvang í nútímalistum á Bretlandseyjum, fyrir utan London. Ferðamenn streyma að hvaðanæva að, borgin eldist einstaklega vel og blómstrar nú sem aldrei fyrr.



Skotar eru vinaleg þjóð og glaðværir gestgjafar. Ef þú stendur áttavilltur í miðbæ borgarinnar (þekktur sem "town", en öllu heldur "the toon" hjá skotum) er mjög líklegt að hjálpsamur vegfarandi komi og bjóði þér aðstoð sína. Skotar eru bara þannig. Og ef enginn kemur af fyrra bragði er bara að spyrja næsta mann. Það ber árangur. 

Glasgow hefur tvisvar hlotið titilinn "Carry Capital of Britain", en þar er mjög mikið úrval af ýmis konar veitingastöðum, hvort sem þú vilt indverskt eða eitthvað annað. Hún þarf líka að standast ákveðin gæði, borgin er nefnilega hvorki meira né minna en fæðingastaður sjónvarpskokksins alræmda Gordon Ramsey.


Hvað er hægt að gera í Glasgow

Borgarstjórnin hefur aðsetur í The City Chambers, tignarlegri 19. aldar byggingu sem hægt er að skoða

Glasgow Cathedral  er glæsileg bygging, jafnt að innan sem utan

Það er indælt að setjast á Willows Tea Room, fá sér tebolla og njóta útsýnisins

Glasgow er afar græn borg, þar er fjöldi skrúðgarða að skoða, eða hanga í og slaka á

The Ubiquitous Chipeða bara The Chip er ekta lókal staður með mat og drykk

Er ekki tilvalið að versla eins og eitt skotapils? When in Glasgow...


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með áætlunarflugi Icelandair

  • 20kg innritaður farangur
  • 5kg handfarangur


Flogið út

Flogið er í á fimmtudegi 24. sept. með  Icelandair kl. 10:10  frá Keflavík, og lent í Glasgow kl 13:25


Flogið er í á föstudegi 25. sept. með  Icelandair kl. 10:10  frá Keflavík, og lent í Glasgow kl 13:25


Flogið heim

Flugið með Icelandair frá Glasgow kl 14:20, sunnudaginn 27. sept. og lent í Keflavík kl 15:45.


Flugið með Icelandair frá Glasgow kl 14:20, mánudaginn 28. sept. og lent í Keflavík kl 15:45.

Gisting

3 nætur hóteli miðsvæðis í Glasgow. Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli ca. 1klst mín.


Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

(Kostar 3.200 kr./mann að bæta við, miðast við 170  manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Tilboð 1

Hótel

voco Grand Central Glasgow IHG

****



Stígðu inn í söguna á voco® Grand Central Glasgow, glæsilegu kennileiti við hliðina á Glasgow Central lestarstöð. Hér sameinast glæsileiki 19. aldar og nútíma þægindi – fullkomið fyrir þá sem vilja upplifa hjarta borgarinnar. Stutt er í neðanjarðarlest, verslanir, menningu og OVO Hydro tónleikahöllina. Herbergin eru rúmgóð og stílhrein, með lúxus snyrtivörum, USB tengjum og sérvöldum listaverkum. Gestir njóta veitinga og kokteila í Champagne Central bar, eða gæða sér á skoskum morgunverði á veitingastaðnum. voco® Grand Central Glasgow – þar sem saga og nútími mætast á einstakan hátt.


Booking.com einkunn er 8,8  og 9,7 fyrir staðsetningu.


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

159.990 kr.

á mann í tvíbýli

219.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 2

Hótel

Apex City of Glasgow
****

Hið 4 stjörnu Apex City of Glasgow Hotel er staðsett í hjarta tískuhöfuðborgar Skotlands. Friðsæl staðsetningin, grípandi ytra byrði og smekklegar innréttingar gera það að fullkomnum stað til að vera á. Með boutique svefnherbergjum og íburðarmiklum svítum með ókeypis Wi-Fi.


Láttu þér líða vel í rúmgóðum herbergjum sem eru með flatskjásjónvarpi, litlum ísskáp og heita drykkjarstöð til að koma til móts við allar þarfir þínar. Með þægilegu rúmi og rúmgóðu en suite, njóttu þess að fara í sturtu með Antipodes lífrænum snyrtivörum sem hjálpa þér að vera grænn á meðan þú ert hreinn. Ef þér líður sérstaklega vel skaltu hækka dvöl þína með því að bóka tvíhliða svítu sem býður upp á útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.


Gerðu borgina þína einfalda og vertu vel tengdur hér. Á jaðri hinnar iðandi Bath Street, finndu þig umkringdur leikhúsum, verslunum og viðburðamiðstöðvum, þar á meðal SECC og OVO Hydro. Auk þess eru aðallestarstöð Glasgow og Queen Street lestarstöðin bæði í aðeins 5 til 10 mínútna göngufjarlægð. Það er ævintýri gert auðvelt


Booking.com einkunn er 8,7 og 9,3 fyrir staðsetningu.


Kvöldverður fyrir hópinn ykkar

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

149.990 kr.

á mann í tvíbýli

189.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

mi. 519-8900

GSM. 895-9666

Netfang. julia@tripical.com