Til Bilbao

30. april - 3. maí 2026

Tilboðið miðast við 100 manns/hóp og gengi dagsins gildir til 9.9.2025


Í Bilbao blandast nútíð og fortíð svo skemmtilega saman að borgin hefur oftar en einu sinni hlotið verðlaun fyrir hönnun sína og skipulag. Sannarlega ein af áhugaverðustu borgum Spánar.

Borgin Bilbao er staðsett á norðurhluta Spánar, 16 km frá hafi, með um 350.000 íbúa. Innfæddir nefna hana oft holuna (botxo), sem stafar af staðsetningu hennar í miðju tígurlegs fjallagarðs sem umvefur hana með sínum grænu fallegu hlíðum. Þótt þar finnist menjar allt frá 11. öld er aldur hennar rakinn til 14. aldar og þá hófst hennar blómaskeið. Gamli bærinn er dásamlegur minnisvarði þess tíma og þar er ánægjulegt að spássera hinar svokölluðu ,,Sjö götur“ (Las 7 Calles) og uppgötva fornar helgimyndir og byggingar. Þá er Bilbao lifandi sönnun þess að matur er list. Úrvalið af veitingastöðum, allt frá litlum götustöðum til fínni veitingahúsa er enda-

laust, og rétt að benda á að fjöldi Michelin stjörnustaða er hér með því mesta í heimi.

Ein af stærri rósum borgarinnar er Guggenheim safnið sem opnað var 1997. Í kjölfarið var lagður metnaður í byltingarkenndan og sérstakan byggingarstíl sem sjá má í mörgum risabyggingum sem hannaðar eru af þekktustu arkitektum heimsins. En Bilbao eru auk þess mjög græn borg, með mikið af yndislegum útisvæðum, eins og garðinn Doña Casilda de Iturrizar sem er tilvalinn til að slaka á og njóta náttúru og afslappandi umhverfis. Bilbao er þannig einstök blanda af gömlu og nýju, rólegheitum og líflegri borgarstemmingu.


 Hvað er hægt að gera í Bilbao

Plaza Nueva og göturnar í kring eru fullar af annasömum börum sem bjóða upp á fræga pintxos: litla, ljúffenga bita af mat

Hinir töfrandi klettar Getxo eru í rúmlega 30 mínútna fjarlægð með neðanjarðarlestinni.

La Ribera markaðurinn er staðsettur í glæsilegri byggingu og þar geturðu látið elda fyrir þig hráefnið sem þú velur þér

S. James dómkirkjan er gullfalleg 14. aldar bygging sem er vel þess virði að skoða.

Taktu Artxanda kláfferjuna upp í fjall, klassískur valkostur til að fá útsýni yfir Bilbao

Fótboltaáhugafólk ætti að heimsækja San Mamés Museum and Statium


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical, 1 innrituð taska 20 kg og 5 kg handfarangur.

Flogið út

Brottför frá Keflavík - Tímar koma síðar

Flogið heim

Brottför frá Bilbao  -flugtími kemur síðar



Gisting

3 nætur á hóteli miðsvæðis í Bilbao

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Bilbao, ca 20 mín

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

(Kostar 5,900 kr./mann að bæta við, miðast við 100 manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Tilboð 1

Hótel

NH Collection Villa de Bilbao

⭐️⭐️⭐️⭐️

Þetta nútímalega hótel er í hjarta Bilbao, við San Mamés fótboltaleikvanginn og Euskalduna-höllina. Það býður upp á ókeypis Wi-Fi Internet og gestir geta notið ókeypis aðgangs að líkamsræktarstöð.


NH Collection Villa de Bilbao er í göngufæri frá Guggenheim-safninu, Doña Casilda Park og Fine Arts Museum. Margir tapasbarir og verslanir eru í nágrenninu, þar á meðal Zubiarte-verslunarmiðstöðin.


Hollur detox-morgunverður NH er borinn fram á veitingastaðnum Le Bol Blanc. Það er líka móttökubar þar sem ókeypis Wi-Fi er í boði.


San Mamés-neðanjarðarlestarstöðin er í 400 metra fjarlægð.


Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,1 fyrir staðsetningu á booking.com 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

217.990 kr.

á mann í tvíbýli

269.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 2

Hótel

Hotel Ercilla er nútímalegt hótel staðsett í miðbæ Bilbao. Það býður upp á líkamsræktarstöð og stílhrein gistirými með flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum, ókeypis Wi-Fi Interneti og sérbaðherbergi.


Bar Americano býður upp á yndislegan morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Sérstaða þeirra er baskinn frændi og kokteilar.


La Terraza er kokteilbar sem hefur yndislegt útsýni til Bilbao og býður einnig upp á mat.


Hið glæsilega Guggenheim-safn í Bilbao er í 15 mínútna göngufjarlægð. Það er neðanjarðarlestarstöð handan við götuna frá hótelinu sem tengir þig við ströndina á innan við 20 mínútum.


Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

219.990 kr.

á mann í tvíbýli

274.990 kr.

á mann í einbýli


Tilboð 3

Hótel

Radisson Collection Bilbao

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Radisson Collection Bilbao er með líkamsræktarstöð, verönd, veitingastað og bar í Bilbao. Þetta 5 stjörnu hótel býður upp á ókeypis WiFi, herbergisþjónustu og sólarhringsmóttöku. Gististaðurinn er 500 metra frá miðbænum og 1,1 km frá Listasafni Bilbao.


Hótelið býður gestum upp á loftkæld herbergi með skrifborði, kaffivél, minibar, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með sturtu. Sumar einingar á Radisson Collection Bilbao eru með borgarútsýni og herbergin eru með ketil. Öll herbergin eru með fataskáp.


Hlaðborðs- og à la carte-morgunverður er í boði á gististaðnum.


Gestir geta nýtt sér viðskiptamiðstöðina til að vinna eða farið í skoðunarferð sem upplýsingaborð ferðaþjónustu skipuleggur.


Áhugaverðir staðir í nágrenni Radisson Collection Bilbao eru Arriaga-leikhúsið, San Mamés-neðanjarðarlestarstöðin og San Mamés-leikvangurinn. Bilbao-flugvöllur er í 8 km fjarlægð frá gististaðnum.


Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com 

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

244.990 kr.

á mann í tvíbýli

319.990 kr

á mann í einbýli


ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel. Fyrirvari að viðbótar sæti vélar seljast.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com