
Til Barcelona
8.-11. maí og 15.-18.maí 2025
Með sólbaðsstrendur og einstakan byggingarstíl frá fornum hofum til framúrstefnu Gaudí. Barcelóna er sannkölluð Miðjarðarhafsperla.
Barcelona er borg sem hefur dregið til sín fjölda listamanna vegna fegurðar sinnar og sérstöðu. Barcelona býður upp á heimsklassa söfn, katalónska matseld, dans og víðfrægt næturlíf.
Arkitektúr borgarinnar er æði fjölbreyttur. Turnar úr gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Þá er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí.
Göngugötur Barcelona eru vinsælar og oft margt um manninn. Frægust þeirra er Ramblan, La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur á hverju strái. Berceloneta heitir þekktasta strönd borgarinnar, þar sleikir Miðjarðarhafssólin gylltan sand og heiðblátt hafið. Barcelona er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa litríka menningu.
Hvað er hægt að gera í Barcelona
Hvað er innifalið í ferðinni
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Tilboð 1
Hótel
Catalonia Catedral
****
Catalonia Catedral er staðsett í hefðbundinni módernistabyggingu í aðeins 100 metra fjarlægð frá dómkirkjunni í Barselóna. Boðið er upp á ókeypis notkun á snjallsímum, WiFi, þaksundlaug sem er opin hluta af árinu og verönd og garð í japönskum stíl.
Veitingastaður hótelsins, Ascent Restaurant by Eboca, framreiðir rétti frá Miðjarðarhafslöndunum og býður upp á útsýni yfir listagalleríið Palacio Pignatelli sem er skammt frá. Á barnum í móttökunni geta gestir fengið ókeypis afnot af tölvum með netaðgangi og prenturum.
Catalonia Catedral er í um 10 mínúta göngufjarlægð frá kennileitum eins og Römblunni og Katalóníutorgi. Gamla höfnin í Barselóna og smábátahöfnin eru í innan við 1 km fjarlægð. Jaume I-neðanjarðarlestarstöðin er í 5 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 9,1 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
199.990 kr.
á mann í tvíbýli
299.990 kr.
á mann í einbýli
Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.
Tilboð 2
Hótel
Exe Plaza Catalunya
****
Exe Plaza Catalunya er staðsett á besta stað í Eixample-hverfinu í Barselóna, 2,7 km frá Sant Miquel-ströndinni, 2,9 km frá Somorrostro-ströndinni og 2,9 km frá Barceloneta-ströndinni. Meðal þjónustu í boði á gististaðnum má nefna sólarhringsmóttöku, alhliða móttökuþjónustu og ókeypis WiFi hvarvetna á gististaðnum. Gestir geta fengið upplýsingar um svæðið hjá upplýsingaborði ferðaþjónustu.
Áhugaverðir staðir í nágrenni gististaðarins eru meðal annars Plaça Catalunya, Boqueria-markaðurinn og Tivoli-leikhúsið. Næsti flugvöllur er El Prat-flugvöllurinn í Barselóna en hann er í 15 km fjarlægð frá Exe Plaza Catalunya.
Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
179.990 kr.
á mann í tvíbýli
254.990 kr.
á mann í einbýli
Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.
Tilboðið miðast við 35 manns og gildir til 28.08.2025
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!