Til Split

17. - 21. september 2026

Tilboðið miðast við 30 manns og gengi dagsins gildir til 5.9.2026


Split er stærsta borg Dalmatíu. Hún er talin vera 1700 ára gömul og íbúafjöldi hennar gerir Split að næststærstu borg Króatíu. 

Í sögulegum kjarna Split, og listað á Heimsminjalista Menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), stendur stórbrotin höll rómverska keisarans Diocletian, bygging frá því um fjórðu öld fyrir Krist. Í gegnum aldirnar hefur gamli bær Split byggst inn í og kringum höllina, þar má finna þrjú rómversk musteri og stærðarinnar grafhýsi.

Rómverjar byggðu mikið af byggingum Split og má þar finna fornminjar sem ná aftur til 500 f.kr. Borgin er afar ferðamannavæn og falleg. Split býður einnig upp á mjög líflegt og spennandi næturlíf. Þar er margt hægt að gera sér til afþreyingar, og við mælum hiklaust með skoðunarferð um rómversku rústirnar sem borgin er byggð í kringum.


 Hvað er hægt að gera í Split

Fara á markaðinn og kaupa alvöru nýtýndar Istriskar trufflur!!

Kafaða, snorkla eða sigla í tærasta hafi Evrópu - Adríahafinu

Fara í vínsmökkun á Zinfandel Wine Bar í gamla bænum. Króatísku vínin koma skemmtilega á óvart!

Liggja á ströndinni með kokteil í hönd og fylgjast með öllum snekkjunum

Rölta um gamla bæinn og kíkja á höll Diocletian

Skoða rómversku rústirnar og ekki gleyma að tékka á Járninu og gullna hliðinu 


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með PlayAir

  • 20 kg innritaður farangur
  • Ein handtaska


Flogið út

Flogið út frá KEF kl. 11:10  og lent að staðartíma í Split 17:55

Flogið heim

Flogið heim kl. 18:30 og lent að staðartíma í KEF kl. 21:25

Gisting

4 nætur á hóteli miðsvæðis í Riga

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Split

ca. 30 mín akstur

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

(Kostar 13,900 kr./mann að bæta við, miðast við 30 manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Tilboð 1

Hótel

AC Hotel by Marriott Split

****

AC Hotel by Marriott Split er staðsett í Split, í innan við 2,5 km fjarlægð frá Bacvice-ströndinni og býður upp á bar, reyklaus herbergi og ókeypis WiFi. Áhugaverðir staðir í nágrenninu eru til dæmis styttan Grgur Ninski, Fornleifasafnið í Split og torgið Narodni Trj. Gestir geta nýtt sér heilsulind og vellíðunaraðstöðu með innisundlaug, líkamsræktarstöð og gufubaði ásamt veitingastað.

Hótelið býður gestum upp á loftkæld herbergi með skrifborði, katli, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með baðkari eða sturtu. Herbergin eru með fataskáp.


Morgunverðarhlaðborð, à la carte- eða léttur morgunverður er í boði á hverjum morgni á gististaðnum.


Gestir AC Hotel by Marriott Split geta nýtt sér heitan pott.


Starfsfólk móttökunnar talar þýsku, ensku, spænsku og króatísku og veitir gestum gjarnan ráðleggingar um svæðið.


Meðal áhugaverðra staða í nágrenni við gistirýmið eru Mladezi Park-leikvangurinn, höll Díókletíanusar og Spaladium Arena. Næsti flugvöllur er Split-flugvöllur, 21 km frá AC Hotel by Marriott Split.


Hótelið fær heildareinkunina 9,3 og 8,9 fyrir staðsetningu. 


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

179.990 kr.

á mann í tvíbýli

267.990 kr.

á mann í einbýli


ATH.

Hægt er að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan.

Ef hótelið er uppbókað á þessum tíma, finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir, fyrr en tilboð hefur verið staðfest

og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com