Til Riga

17. - 20. september 2026

Tilboðið miðast við 30 manns og gengi dagsins gildir til 5.9.2026


Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nýju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi. 

Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinumýymsu snyrtistofum borgarinnar. 

Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.


 Hvað er hægt að gera í Riga

Art Nouveau safnið er ansi magnað

Slaka á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstök


Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Þú ert umkringdur gömlum byggingum sem gaman er að skoða.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Air Baltic

  • 20 kg innritaður farangur
  • Ein handtaska


Flogið út

Flogið út frá KEF kl. 00:30  og lent að staðartíma í Riga kl. 07:05 +1

Flogið heim

Flogið heim kl. 22:45 og lent að staðartíma í KEF kl. 23:40

Gisting

3 nætur á hóteli miðsvæðis í Riga

Innifalið er morgunverður og wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Riga

ca. 30 mín akstur

Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

(Kostar 13,900 kr./mann að bæta við, miðast við 30 manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.


Tilboð 1

Hótel

Radisson Hotel Old Town Riga

****

Radisson Hotel Old Town Riga er staðsett í hjarta gamla bæjarins, þar sem flestir áhugaverðir staðir í gamla bænum eru staðsettir í allt að 500 metra fjarlægð frá hótelinu. Hótelbyggingin er fjölbreytt og stílhrein og það er ókeypis WiFi.


Öll herbergin eru nýtískulega hönnuð með hlutlausum litum. Öll herbergin eru með öryggishólf, setusvæði, minibar, flatskjásjónvarp og hraðsuðuketil. Baðherbergið er með sturtu eða baðkari, ókeypis snyrtivörum og hárþurrku.


National Opera House er staðsett í 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og það tekur 15 mínútur að komast að aðallestarstöð Ríga gangandi. Ríga-flugvöllur er í 20 mínútna akstursfjarlægð.


Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

104.990 kr.
( Snemm innritun 13.000 kr.)

( 5 nætur á 127.990 kr. )

á mann í tvíbýli

129.990 kr.
( Snemm innritun 20.000 kr.)

( 5 nætur á 167.990 kr. )

á mann í einbýli


Tilboð 1

Hótel

AC Hotel by Marriott Riga Hotel

****

Fjögurra stjörnu hótel staðsett í heillandi Art Nouveau hverfi Riga borgar. Aðeins örfáar mínútur frá aðal kjarna Riga en mun hljóðlátara. Í göngufæri er úrval veitingastaða, bara, kaffihúsa og verslana. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og bar. 


Hótelið fær heildareinkunn 9,0 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

109.990 kr.
( Snemm innritun 13.000 kr.)

( 5 nætur á 134.990 kr. )

á mann í tvíbýli

139.990 kr.

( Snemm innritun 20.000 kr.)

( 5 nætur á 179.990 kr. )

á mann í einbýli


Tilboð 2

Hótel

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel

****

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 

Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.

Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00. Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.

Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.


Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.


Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

117.990 kr.

( Snemm innritun 13.000 kr.)

( 5 nætur á 144.990 kr. )

á mann í tvíbýli

132.990 kr.

( Snemm innritun 20.000 kr.)

( 5 nætur á 169.990 kr. )

á mann í einbýli


ATH.

Hægt er að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan.

Ef hótelið er uppbókað á þessum tíma, finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir, fyrr en tilboð hefur verið staðfest

og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com