Til Riga

14. - 17. maí  2026

Tilboðið miðast við 65 manns og gengi dagsins gildir til 17.8.2025


Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi. 

Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinumýymsu snyrtistofum borgarinnar. 

Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.


 Hvað er hægt að gera í Riga

Art Nouveau safnið er ansi magnað

Slaka á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstök


Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Þú ert umkringdur gömlum byggingum sem gaman er að skoða.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Air Baltic

  • 23 kg innritaður farangur
  • Ein handtaska


Flogið út

Flogið út frá KEF kl. 00:30  og lent að staðartíma í Riga kl. 07:05 +1

Flogið heim

Flogið heim kl. 22:45 og lent að staðartíma í KEF kl. 23:40

Gisting

3 nætur á hóteli miðsvæðis í Riga

(Með morgunmat)

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli 


Fararstjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

(Kostar 6,900 kr./mann að bæta við, miðast við 65 manns)


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



Tilboð 1

Hótel

AC Hotel by Marriott Riga Hotel

****

Fjögurra stjörnu hótel staðsett í heillandi Art Nouveau hverfi Riga borgar. Aðeins örfáar mínútur frá aðal kjarna Riga en mun hljóðlátara. Í göngufæri er úrval veitingastaða, bara, kaffihúsa og verslana. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða og bar. 


Hótelið fær heildareinkunn 9,0 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

114.990 kr.

á mann í tvíbýli

144.990 kr.

á mann í einbýli

Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.


Tilboð 2

Hótel

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel

****

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 

Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.

Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00. Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.

Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.


Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.


Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

119.990

á mann í tvíbýli

154.990 kr.

á mann í einbýli

Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.


Tilboð 3

Hótel

Radisson Blu Ridzene

****

Hið 4 stjörnu Radisson Blu Ridzene Hotel er með útsýni yfir Esplanade Park í Ríga og er staðsett í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá sögulega gamla bænum. Það býður upp á herbergi með ókeypis Wi-Fi Interneti og setusvæði.


Öll herbergin á Ridzene Hotel eru loftkæld. Öryggishólf og kapalsjónvarp eru í boði. Öll eru með baðherbergi með hárþurrku og snyrtivörum.


Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er borið fram á hverjum morgni á veitingastað hótelsins, Piramida, sem sérhæfir sig í alþjóðlegum réttum. Gestir geta fengið sér drykk eða snarl á Ridzene Bar & Library.


Líkamsræktaraðstaðan á staðnum býður upp á hjarta- og þyngdarþjálfunarvélar, gufubað og eimbað. Starfsfólk móttökunnar er til taks allan sólarhringinn.


Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Tilboð 4

Hótel

Radisson Blu Elizabete Hotel, Riga

****

Radisson Blu Elizabete Hotel er staðsett í 550 metra fjarlægð frá Frelsisvarðanum, og býður upp á rúmgóð, loftkæld herbergi með ókeypis WiFi. Hótelið er einnig með gufubað og heilsuræktarmiðstöð.


Herbergin á Radisson Blu Elizabete Hotel eru innréttuð í nútímalegum stíl. Öll herbergin eru með stóran flatskjá með gervihnattarásum og rúmgóð setusvæði. Öryggishólf, skrifborð og hraðsuðuketill eru einnig til staðar.


Gamli bærinn í Ríga, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, er aðeins í 750 metra fjarlægð frá Radisson Blu Elizabete Hotel. Dómkirkjan í Ríga er í 400 metra fjarlægð. Almenningsgarður og margar verslanir eru á svæðinu.


Veitingastaðurinn C.U.T. framreiðir lífrænan mat, en sérhæfir sig í grillréttum og suður-amerískri matargerð. Veitingastaðurinn býður einnig upp á úrval af vínum. Gestir geta einnig nýtt sér bar hótelsins.

Ferðalangar sem eru einir á ferð eru sérlega hrifnir af staðsetningunni


Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

124.990 kr.

á mann í tvíbýli

144.990 kr.

á mann í einbýli

Ath. Ofannefnt verð er eingöngu gefið upp til viðmiðunar, raunverulegt verð verður ákveðið og tilkynnt við staðfestingu á áfangastað.


ATH.
Boðið er upp á að velja á milli þriggja hótela sem að skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna að það gerist að hótelið er ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferðin hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

GSM. 895-9666

Netfang. julia@tripical.com