
Til Sitges
15. apríl - 18. apríl
17. apríl - 20. apríl
24. apríl - 27. apríl
Tilboðið miðast við 180 manns og gengi dagsins gildir til 16.9.2025
Fjölbreytileikanum fagnað í suðrænni paradís!
35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin sólríka og sykursæta Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheita næturlífi og frábæru festivölum. Yndislegur staður!
Fjölbreytileikanum er fagnað í þessum dásemdar smábæ með dansi og tónlist hvenær sem færi gefst. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur, hvers kyns eða kynhneigðar sem það er. Hér eru allir vinir, og öllum áhyggjum og óþarfa leiðindum er góðfúslega vísað frá.
Litlir götustígar skera bæjarkjarnann þvers og kruss. Alls staðar eru litlar verslanir, skemmtilegir veitingastaðir og krár, þar sem auðvelt er að finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem lagst er í gott sólbað á einni af þeim 13 ströndum sem tilheyra svæðinu.
Sitges er stundum nefnd Festivalabærinn. Árið um kring standa yfir hátíðir af ýmsu tagi. Þekktust er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming yfirtaka bæinn. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt öðrum minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun
Hvað er hægt að gera í Sitges
Hvað er innifalið í ferðinni
Flogið út
Brottför 1 Icelandair 60 sæti:
Frá Keflavík miðvikudaginn 15. apríl kl. 08:25, lent kl. 14:45 í Barcelona
Brottför 2 Icelandair 60 sæti:
Frá Keflavík föstudaginn 17. apríl kl. 08:25, lent kl. 14:45 í Barcelona
Brottför 3 Icelandair 60 sæti:
Frá Keflavík föstudaginn 24. apríl kl. 08:25, lent kl. 14:45 í Barcelona
Flogið heim
Heimför 1 Icelandair 60 sæti:
Frá Barcelona miðvikudaginn 18. apríl kl.15:45 og lent á Keflavík kl 18:20.
Heimför 2 Icelandair 60 sæti:
Frá Barcelona mánudaginn 20. apríl kl.15:45 og lent á Keflavík kl 18:20.
Heimför 3 Icelandair 60 sæti:
Frá Barcelona mánudaginn 27. apríl kl.15:45 og lent á Keflavík kl 18:20.
Tripical sér um allt úti
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Tilboð 1
Hótel
Eurostars Sitges
*****
Eurostars Sitges er 2 km frá ströndinni í Sitges og býður upp á útsýni yfir Miðjarðarhafið og Terramar-golfklúbbinn. Ókeypis WiFi og ókeypis bílastæði eru í boði.
Herbergin eru með loftkælingu, einkaverönd með útsýni, flatskjá, öryggishólf fyrir fartölvu, minibar, te-/kaffivél og sérbaðherbergi með hárþurrku og baðsloppum.
Gististaðurinn býður upp á veitingastaði, bari, slökunarsetustofu og boutique-veitingastað. Gestir geta notið fínna à la carte-rétta, víns, snarls og kokkteila.
Eurostars Sitges býður upp á heilsumiðstöð með heilsulind, innisundlaug, heitum potti, gufubaði og eimbaði gegn aukagjaldi. Einnig er boðið upp á meðferðir og snyrtimeðferðir.
Gististaðurinn er með sólarhringsmóttöku og upplýsingaborð ferðaþjónustu. Gestir eru með ókeypis aðgang að líkamsræktaraðstöðu sem er opin allan sólarhringinn.
Miðbær Sitges er í 3,5 km fjarlægð frá gististaðnum. Eurostars Sitges er í innan við 25 mínútna fjarlægð með lest frá Barcelona-alþjóðaflugvellinum og í innan við 50 mínútna fjarlægð frá miðbæ Barcelona.
Pör eru sérlega hrifin af staðsetningunni — þau gáfu henni einkunnina 8,5 fyrir tveggja manna ferðir.
Verðin
159.990 kr.
á mann í tvíbýli
197.990 kr.
á mann í einbýli
Tilboð 2
Hótel
Hotel Medium Sitges Park
***
Nýtískuleg herbergin á Hotel Medium Sitges Park eru með hrífandi innréttingar og hvít húsgögn. Öll herbergin eru með loftkælingu, flatskjá og ókeypis WiFi.
Gestir geta notið morgunverðarhlaðborðsins. Sundlaugarbar er einnig í garðinum. Bar del Park býður upp á úrval af léttum réttum, tapas-réttum og samlokum allan daginn og úrval af drykkjum sem gestir geta notið á einstakri verönd hótelsins.
Hótelið er staðsett í fallega gamla bænum í Sitges í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá Sant Bertomeu-kirkjunni og ströndinni. Lestarstöð bæjarins er í innan við 1 km fjarlægð og lestir ganga reglulega til Barcelona sem er í 30 mínútna fjarlægð.
Hótelið fær 8.4 í einkunn á booking.com og
9.5
í einkunn fyrir staðsetningu
Verðin
135.990 kr.
á mann í tvíbýli
167.990 kr.
á mann í einbýli
Tilboð 3
Hótel
Hotel Calipolis
****
Calipolis er staðsett miðsvæðis í Sitges og við ströndina. Það býður upp á sólarhringsmóttöku, útisundlaug, líkamsræktarstöð, herbergi sem eru með loftkælingu og ókeypis WiFi.
Veitingastaður hótelsins, Infinity Restaurant, býður upp á Miðjarðarhafsrétti við hliðina á sundlauginni.
Það er einnig bar til staðar og sumarverönd með útsýni yfir sjóinn og göngusvæðið.
Boðið er upp á ókeypis afnot af sundlaugarhandklæðum og hægt er að leigja hjól í móttökunni.
Heildareinkunn 8,6 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
.
Verðin
149.990 kr.
á mann í tvíbýli
193.990 kr.
á mann í einbýli
ATH.
Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!