Til Berlínar

14. - 17. maí 2026

Tilboðið miðast við 18 manns á gengi dagsins og gildir til 29.09.2025


Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir.

Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.

Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 

Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.


Hvað er hægt að gera í Berlín

Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie

Útvarpsturninn á Alexander Platz

Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn



Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair 

  • 20 kg taska
  • 1x handfarangur

Flogið út

Brottför kl. 07:35   frá Keflavík → lending í Berlínar kl. 13:10   

(bein flug, ~3 klst 35 mín)

Flogið heim

Heimferð: kl. 14:05 frá Berlín → lending í Keflavík kl. 15:50

(bein flug, ~3 klst 45 mín).

Gisting

3 nætur á hóteli í miðborg Berlín. Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli, aksturstími ca 30 mín

Fararstjórn

Einn skemmtilegur Tripical fararstjóri.

Hægt að bóka gegn gjaldi.
kr. 299.000
á hópinn


Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina  úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt  kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.

Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynsluí að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!


Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical!


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.



SANA Berlin Hotel 

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Þetta glæsilega hótel er í aðeins 700 metra fjarlægð frá KaDeWe-stórversluninni á Kurfürstendamm í Berlín og býður upp á ókeypis heilsulind með sundlaug, hljóðeinangruð herbergi og veitingastaðinn Lobby Lounge sem framreiðir snarl og léttar máltíðir yfir daginn.


Á hótelinu er flottur bar og veitingastaður  í móttökunni með verönd með setusvæði, sannkallaðan borgarfundarstaðsetning fyrir gesti, heimamenn og utanaðkomandi gesti, 1 heilsuræktarsvæði og glænýja heilsulind með upphitaðri innisundlaug, gufubaði með víðáttumiklu útsýni, tyrknesku baði og nuddherbergi.


Dýragarðurinn í Berlín og kirkjan Kaiser-Wilhelm-Gedächtniskirche eru í 10 mínútna göngufjarlægð frá Hotel SANA Berlin. Neðanjarðarlestarstöðin Augsburger Straße er í 2 mínútna göngufjarlægð. Hótelið býður einnig upp á reiðhjóla- og bílaleigu.


Heildareinkunn 8,7 og staðsetning fær 8,9  á booking.com

Verðin

154.990 kr.

á mann í tvíbýli

189.990 kr.

á mann í einbýli


Þetta hótel er staðsett við sögulegu götuna Friedrichstrasse í Berlín og býður upp á heilsulind, hrífandi garð og einstaka móttöku með tilkomumiklum stiga. Brandenborgarhliðið er í 10 mínútna göngufjarlægð.


Veitingastaðurinn og barinn Relish býður upp á nútímalegan mat með frönsku og asísku ívafi. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er í boði á veitingastaðnum Coelln á hverjum degi. Gestir geta fengið sér drykk á sígilda barnum í móttökunni en hann er með glugga með víðáttumiklu útsýni.


Westin Spa & Fitnesslounge er með líkamsræktarstöð. Hægt er að bóka slökunarnudd og úrval af snyrtimeðferðum.


Französische Strasse-neðanjarðarlestarstöðin er í 1 mínútu göngufjarlægð. Það eru nokkrar strætisvagnastöðvar við fræga Unter den Linden-breiðstrætið en það er aðeins 100 metrum frá hótelinu.


Heildareinkunn 7,9, Starfsfólk fær 8,4 og staðsetning fær 9,5 á booking.com

 

Verðin

159.990 kr.

á mann í tvíbýli

189.990 kr.

á mann í einbýli


 Berlin Marriott Hotel 

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Þetta hótel í Berlín er í 10 mínútna göngufjarlægð frá Brandenborgarhliðinu og í 100 metra fjarlægð frá almenningsgarðinum Tiergarten. Það býður upp á glæsileg herbergi og líkamsræktarstöð sem er opin allan sólarhringinn.


Herbergin á Berlin Marriott Hotel eru rúmgóð og loftkæld, með mahóníhúsgögnum, gervihnattasjónvarpi og öryggishólfi fyrir fartölvu. Baðsloppar og inniskór eru til staðar og herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.


Amerískir sérréttir eru framreiddir á Midtown Grill á Berlin Marriott en þar er opið eldhús og sumarverönd. Veitingastaðurinn The Big Dog framreiðir ljúffengar pylsur, flottar franskar og hressandi drykki. Í setustofunni í móttökunni geta gestir fengið sér fjölbreytt úrval af hressingu, drykkjum og kokteilum.


Potsdamer Platz-lestarstöðin er í 200 metra fjarlægð, en þaðan ganga U2-neðanjarðarlestir og S-Bahn-lestir. Við upplýsingaborð ferðaþjónustu geta gestir fengið aðstoð við að skipuleggja dvölina.


Heildareinkunn 8,6 og staðsetning fær 9,5  á booking.com

Verðin

169.990 kr.

á mann í tvíbýli

219.990 kr.

á mann í einbýli


The Westin Grand Berlin

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Þetta hótel er staðsett við sögulegu götuna Friedrichstrasse í Berlín og býður upp á heilsulind, hrífandi garð og einstaka móttöku með tilkomumiklum stiga. Brandenborgarhliðið er í 10 mínútna göngufjarlægð.


Veitingastaðurinn og barinn Relish býður upp á nútímalegan mat með frönsku og asísku ívafi. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er í boði á veitingastaðnum Coelln á hverjum degi. Gestir geta fengið sér drykk á sígilda barnum í móttökunni en hann er með glugga með víðáttumiklu útsýni.


Westin Spa & Fitnesslounge er með líkamsræktarstöð.

Hægt er að bóka slökunarnudd og úrval af snyrtimeðferðum.


Französische Strasse-neðanjarðarlestarstöðin er í 1 mínútu göngufjarlægð. Það eru nokkrar strætisvagnastöðvar við fræga Unter den Linden-breiðstrætið en það er aðeins 100 metrum frá hótelinu.


Heildareinkunn 8,9 og staðsetning fær 9,7  á booking.com

Verðin

184.990 kr.

á mann í tvíbýli

239.990 kr.

á mann í einbýli


Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Skoða umsagnir

Arnór Fannar Reynisson

Fyrirtækjaferðir

Sími. 519-8900

Netfang. arnor@tripical.com